Fara í efni
KA/Þór

Fótbolti, handbolti, körfubolti og íshokkí

Hokkíkonur hefja úrslitakeppni Toppdeildarinnar um næstu helgi þegar SA tekur á móti liði SR. Undirbúningstímabilið í fótboltanum er langt komið, leikið til undanúrslita og úrslita í A-deild Lengjubikars karla í vikunni. Þór leikur í undanúrslitum á morgun, þriðjudag. Bæði körfuboltalið Þórs spila á Selfossi í vikunni og KA/Þór leikur tvo síðustu leiki sína í Olísdeild kvenna í handbolta í vikunni. 

ÞRIÐJUDAGUR 17. MARS - fótbolti

Nú líður að lokum A-deildar Lengjubikarkeppni karla í knattspyrnu. Öðrum undanúrslitaleiknum er lokið þar sem KR sigraði Stjörnuna, en hinn undanúrslitaleikurinn verður á KA-svæðinu á morgun, þriðjudag þegar Þór tekur á móti Fylki.

Þór vann riðil 2, hlaut tíu stig í fjórum leikjum, en liðið lék þó raunar fimm leiki því eftir fyrstu tvo leikina dró Völsungur lið sitt úr keppni. Þór gerði jafntefli við ÍA í fyrsta leik, en vann síðan Gróttu, Aftureldingu og Val og má segja að á ýmsu hafi gengið, en eins og fram hefur komið í fréttum mætti Valur ekki með sitt sterkasta lið norður í lokaleik riðilsins sem skar úr um það hvort félagið færi áfram í undanúrslit.

Lokin á riðli 4, þar sem Fylkir telst hafa orðið í efsta sætinu, voru skondin og bera nokkurt vitni um þá tilvistarkreppu sem Lengjubikarinn virðist kominn í þegar það gerist ítrekað undanfarin ár að lið hafa bókað sig í æfingaferðir til annarra landa og afsala sér réttinum til að fara áfram í undanúrslit. 

Þegar þetta er skrifað hefur Fylkir lokið leikjum sínum í riðli 4 með 12 stig. Í öðru sæti er Þróttur með níu stig, en á tveimur leikjum ólokið. Frestanir á leikjum ÍBV settu strik í reikning þessa riðils. Þróttur á eftir að mæta ÍBV og gæti því náð Fylki að stigum og farið upp í efsta sætið með góðri markatölu. 

  • Lengjubikar karla í knattspyrnu
    A-deild, undanúrslit
    Greifavöllurinn kl. 18
    Þór - Fylkir
  • Útsending: Livey.events
    Áskriftarrás eða stakir leikir

MIÐVIKUDAGUR 18. MARS - handbolti

Tveimur umferðum er ólokið í Olísdeild kvenna í handbolta. KA/Þór situr í 6. sætinu 15 og á möguleika á að færa sig upp um eitt sæti ef allt gengur upp, en Fram er í 5. sætinu með 17 stig. Þröskuldurinn er hins vegar nokkuð hár því næsti leikur er gegn toppliði Vals. 

  • Olísdeild kvenna í handbolta
    KA-heimilið kl. 18:00
    KA/Þór - Valur 
  • Útsending: Handboltapassinn í Sjónvarpi Símans 
    Áskrift að rás eða stökum leikjum

KA/Þór hefur ekki riðið feitum hesti frá viðureignum sínum við Val í vetur. Sjö marka tap, 23-30, varð niðurstaðan á Akureyri í desember og 15 marka tap, 31-16 að Hlíðarenda í janúar.

Ljóst er að KA/Þór mun mæta annaðhvort Haukum eða ÍR í fyrstu umferð úrslitakeppni Íslandsmótsins. Tvö efstu liðin bíða á meðan næstu fjögur eigast við, liðið í 3. sæti gegn 6. sætinu og 4. sætið gegn því fimmta. Haukar eru í 3. sæti með 23 stig og ÍR í 4. sæti með 22.

FIMMTUDAGUR 19. MARS - körfubolti

Kvennalið Þórs í körfuknattleik sækir Selfyssinga heim á fimmtudag. Aþena er í toppsæti 1. deildarinnar með 16 sigra og eitt tap, og hefur liðið þegar tryggt sér deildarmeistaratitilinn og sæti í efstu deild á næsta keppnistímabili. Þór er í 2. sæti deildarinnar, hefur unnið 13 leiki og tapað tveimur, á þrjá leiki eftir. Jafnvel þótt Aþena myndi tapa sínum síðasta leik og Þór ynni alla sína myndi það ekki duga því ef liðin enda jöfn er Aþena með betri árangur í innbyrðis viðureignum liðanna. Fjölnir er í 3. sætinu með 13 sigra og þrjú töp. Selfyssingar eru í 4. sæti deildarinnar, hafa unnið tíu leiki og tapað sex. Þór vann fyrri leik liðanna á Akureyri í desember með 48 stiga mun, 99-51. 

  • 1. deild kvenna í körfubolta
    Vallaskóli á Selfossi kl. 19:15
    Selfoss - Þór
  • Útsending: SÝN KKÍ TV3
    Áskriftarsjónvarp

Liðin í 2.-4. sæti fyrstu deildar fara í umspil eða úrslitakeppni um laust sæti í Bónusdeildinni á næsta tímabili ásamt liðinu í næstneðsta sæti Bónusdeildarinnar. Nú þegar er ljóst að Þór og Fjölnir munu mætast í annarri undanúrslitaviðureigninni og líklegt að Hamar/Þór og Selfoss mætist í hinni, en ÍR á þó möguleika að ná 4. sætinu af Selfossi og komast í umspilið.

FÖSTUDAGUR 20. MARS - körfubolti

Lokaumferð 1. deildar karla í körfubolta verður spiluð á föstudagskvöld. Þór er enn í 10. sæti deildarinnar með fjóra sigra, eins og Hamar. Þór vann báða leikina gegn Hamri og er því ofar á betri árangri í innbyrðis viðureignum þessara liða. Fylkir er áfram í neðsta sætinu þrátt fyrir sigurinn gegn Þór á sunnudag, en vantar aðeins einn sigur til að ná Þór og Hamri þegar einni umferð er ólokið. Það má því búast við nokkurri spennu í leikjum lokaumferðarinnar næsta föstudagskvöld. Þrjú neðstu liðin eiga öll útileik fyrir höndum, Þór gegn Selfossi, Hamar gegn Snæfelli í Stykkishólmi og Fylkir gegn Breiðabliki í Kópavogi.

  • 1. deild karla í körfubolta
    Vallaskóli á Selfossi kl. 19.15
    Selfoss - Þór 
  • Útsending: SÝN KKÍ TV1
    Áskriftarsjónvarp

Þór tapaði fyrri viðureigninni við Selfyssinga í vetur með sex stiga mun, 75-81. 

LAUGARDAGUR 21. MARS - handbolti, fótbolti, íshokkí

KA/Þór leikur lokaleik sinn í Olísdeildinni þetta árið á laugardag, en þá er komið að heimsókn í Úlfarsárdalinn þar sem liðið mætir Fram í lokaumferðinni á laugardag. Möguleikar liðsins á að fara upp um eitt sæti velta á úrslitunum í leikjum þessara liða í næstsíðustu umferðinni á miðvikudag, en þegar tveimur umferðum var ólokið var Fram í 5. sæti deildarinnar með 17 stig og KA/Þór í 6. sæti með 15 stig.

  • Olísdeild kvenna í handbolta
    Lambhagahöllin í Úlfarsárdal kl. 14:00
    Fram - KA/Þór 
  • Útsending: Handboltapassinn í Sjónvarpi Símans
    Áskriftarsjónvarp

Báðir leikir þessara liða í vetur hafa verið hnífjafnir og unnust báðir með eins marks mun á útivelli. KA/Þór vann Fram fyrir sunnan í október, 30-29, en tapaði heimaleiknum í janúar, 20-21.

- - -

Það ræðst á þriðjudagskvöldið hvort Þór kemst í úrslitaleik A-deildar Lengjubikars karla í knattspyrnu. Þór og Fylkir leika í undanúrslitum á þriðjudag og sigurliðið mætir KR á laugardag. KR vann riðil 3, endaði með tíu stig eins og Víkingar, en vann riðilinn á markamun. KR vann síðan Stjörnuna, 2-0, í undanúrslitum.

  • Lengjubikar karla í knattspyrnu
    A-deild, úrslitaleikur
    Leikvöllur óákveðinn, kl. 14
    Þór eða Fylkir - KR

- - -

Á laugardag er komið að úrslitakeppni Toppdeildar kvenna í íshokkí. Þar mætast lið Skautafélags Akureyrar og Skautafélags Reykjavíkur, eins og í karlaflokknum. Lið SA er deildarmeistari, vann Toppdeildina með yfirburðum, endaði með 42 stig, en SR kom næst með 26 stig.

SA vann 15 leiki af 16 í deildinni í vetur, þar af þrjá í framlengingu og/eða vítakeppni. Liðið tapaði aðeins einum leik, en það var á móti SR í Laugardalnum í febrúar. Af átta viðureignum SA og SR í vetur fóru tvær í framlengingu og önnur þeirra áfram í vítakeppni, og vann SA í bæði skiptin.

  • Toppdeild kvenna í íshokkí
    úrslitakeppni, leikur 1
    Skautahöllin á Akureyri kl. 16:45
    SA - SR
  • Útsending: icehockeyiceland.tv
    Áskrift að rás eða stökum leikjum