Fara í efni
KA/Þór

Ágúst Elí frábær og KA í undanúrslit

Ágúst Elí Björgvinsson var frábær í marki KA í sigrinum á ÍBV í dag. Hér ver hann vítakast Hákons Daða Styrmissonar þegar rúmlega tvær og hálf mínúta lifði leiks og staðan var jöfn. Mynd: Ármann Hinrik

KA-menn eru komnir í undanúrslit Íslandsmótsins í handbolta eftir 25:24 sigur á Vestmannaeyingum í KA-heimilinu í dag, sunnudag. Ágúst Elí Björgvinsson var frábær í markinu; hann lagði grunninn að sigri með stórbrotinni frammistöðu en hornamaðurinn Dagur Gautason rak smiðshöggið á gott dagsverk liðsins þegar hann gerði sigurmarkið úr mjög þröngu færi þegar 10 sekúndur voru eftir.

Tvo sigra þurfti til að komast áfram úr átta liða úrslitunum og KA-strákarnir unnu tvíframlengdan leik í Eyjum á fimmtudaginn. Þótt eyjan sé fögur höfðu þeir engan áhuga á að  gera sér ferð þangað aftur í bráð – af augljósum ástæðum.

KA mætir Val í undanúrslitum, það varð ljóst eftir að Valsmenn unnu HK öðru sinni í dag.

Sigurmarkið! Dagur Gautason horfir á eftir boltanum á leið í markið þegar 10 sekúndur voru eftir af leiknum. Bjarni Ófeigur Valdimarsson, lengst til vinstri á myndinni, sendi út í hornið á Dag sem stökk inn í teiginn úr mjög þröngufæri. Mynd: Ármann Hinrik

KA mætir Val í undanúrslitum, það varð ljóst eftir að Valsmenn unnu HK öðru sinni í dag. Fyrsta viðureign liðanna verður í Valsheimilinu að Hlíðarenda eftir rúma viku, á öðrum degi páska – mánudaginn 6. apríl.

Ágúst Elí varði ekki skot fyrr en 10 og hálf mínúta var liðin; staðan þá 5:4 fyrir ÍBV, en það sem eftir var hálfleiksins varði KA-maðurinn 10 af þeim 15 skotum sem hittu á markið! Tölfræði hans í fyrri hálfleik: 10 skot varin af 20, þar af voru 2 vítaköst og í leiknum varði Ágúst Elí 3 af þeim 6 vítum sem Eyjamenn fengu.

Í seinni hálfleik hann varði 9 skot af 22 og þegar leikurinn var gerður upp kom í ljós að hann verði 45,2% þeirra skota Eyjamanna sem hittu á markrammann.

Mörk KA: Dagur Gautason 5, Einar Birgir Stefánsson 5, Bjarni Ófeigur Valdimarsson 4, Einar Rafn Eiðsson 3 (þar af 2 víti), Morten Linder 3, Jens Bragi Bergþórsson 2, Magnús Dagur Jónatansson 2, Arnór Ísak Haddsson 1.

Varin skot: Ágúst Elí Björgvinsson 19, þar af 3 víti (45,2%).

Mörk ÍBV: Dagur Arnarsson 6 (þar af 1 víti), Elís Þór Aðalsteinsson 5, Hákon Daði Styrmisson 5 (þar af 2 víti), Anton Frans Sigurðsson 3, Sigtryggur Daði Rúnarsson 2, Daníel Þór Ingason 1, Róbert Sigurðarson 1, Sveinn José Rivera 1.

Varin skot: Petar Jokanovic 5 (23,8%) – Morgan Goði Garner 4, þar af 1 víti (36,4%).

Leikskýrslan

Öll tölfræðin frá HBStatz