Vilhelm losnaði frá bryggju í Krossanesi
Vilhelm Þorsteinsson EA 11, uppsjávarskip Samherja, losnaði frá bryggju í Krossanesi á Akureyri í mjög slæmu veðri í kvöld, föstudagskvöld. Í ljós kom að bryggjupollar sem skipið var bundið við höfðu brotnað, Vilhelm hékk á einni taug þegar að var komið en starfsmönnum Akureyrarhafnar og félögum í Súlum, björgunarsveitinni á Akureyri, tókst að koma mönnum úr áhöfn Vilhelms um borð og skipinu var siglt að Oddeyrarbryggju.
Tilkynnt var kl. 21:30 að Vilhelm EA hefði losnað. „Lóðsinn á Akureyri var ræstur út sem og Súlur, björgunarsveitin á Akureyri. Mikið hafrót var í höfninni en með aðstoð lóðsins tókst að koma áhöfn um borð og setja vélar þess í gang,“ segir á Facebook síðu lögreglunnar. „Lóðsinn aðstoðaði síðan við að ná skipinu úr höfninni og sigldi það síðan að Oddeyrarbryggju þar sem því var lagt. Ekki er talið að tjón hafi orðið á skipinu en það verður skoðað við betra tækifæri en eitthvert tjón er á hafnarmannvirkjum í Krossanesi.“
Á síðu lögeglunnar segir að viðbragðsaðilar í Eyjafirði hafi sinnt nokkrum verkefnum í kvöld en það í Krossanesi hafi verið mest krefjandi.
„Fyrstu verkefnin komu inn á borð laust fyrir kl. 21:00 en þá var tilkynnt um að þak væri að fjúka af húsi á Ólafsfirði og skömmu síðar kom önnur tilkynning um að rúða hefði brotnað í húsi einnig á Ólafsfirði. Björgunarsveitir á Ólafsfirði og Siglufirði voru ræstar út í þau verkefni. Þá kom ein aðstoðarbeiðni vegna foktjóns á Dalvík og sinnti björgunarsveitin á Dalvík því verkefni.“