Fara í efni
KA

Tveir viðburðir í HA um læsi og lestrarkennslu

Tveir þekktir erlendir sérfræðingar verða með fyrirlestra á tveimur viðburðum við Háskólann á Akureyri í vikunni. Mynd af vef Háskólans á Akureyri.

Tveir erlendir sérfræðingar á sviði læsis og menntunar verða meðal aðalfyrirlesara á tveimur viðburðum við Háskólann á Akureyri (HA) um helgina. Þau Dominic Wyse og Pernille Ripp munu fjalla um rannsóknir, lestrarkennslu og leiðir til að efla áhuga barna á lestri. Námstefna í Byrjendalæsi fer fram föstudaginn 11. september og ráðstefnan Læsi til náms og yndis daginn eftir, laugardaginn 12. september.

Þess má geta að námstefnan í ár er tileinkuð minningu Rósu Eggertsdóttur menntafrömuði og upphafskonu Byrjendalæsis sem lést í október 2024. Veittar verða viðurkenningar og úthlutað í fyrsta sinn úr minningarsjóði Rósu til framúrskarandi læsiskennara

Í frétt á vefsíðu HA kemur fram að Wyse er prófessor við University College London og hefur rannsakað kennslufræði, námskrár og menntun ungra barna í meira en 25 ár. Hann hefur lagt sérstaka áherslu á lestur og ritun. Ásamt samstarfsfólki sínu hefur hann þróað kenningu sem nefnist The Double Helix of Reading and Writing, þar sem lögð er áhersla á að lestur og ritun þróist samhliða og styðji hvort annað.

Á námstefnunni fjallar Wyse meðal annars um lestrarerfiðleika og mikilvægi þess að fara varlega í að yfirfæra niðurstöður rannsókna á afmarkaða nemendahópa yfir á kennslu allra barna. Á ráðstefnunni kynnir hann síðan kenninguna um samspil lestrar og ritunar.

Pernille Ripp er grunnskólakennari, rithöfundur og fyrirlesari. Hún stofnaði verkefnið Global Read Aloud, sem hefur tengt saman nemendur í meira en 85 löndum með sameiginlegum lestri. Í starfi sínu leggur hún áherslu á lestrargleði, sjálfræði nemenda og að börn upplifi sig sem virka lesendur.

Ripp fjallar á námstefnunni um hvernig hægt sé að efla lestrarfærni barna á aldrinum sex til tíu ára án þess að lestrargleðin glatist. Á ráðstefnunni daginn eftir verður áherslan á hvernig hægt sé að viðhalda gleði, forvitni og mannlegum tengslum í læsiskennslu þrátt fyrir auknar kröfur um skipulag og mælanlegan árangur.

Í fréttinni á vef HA segir að viðburðirnir gefi þátttakendum tækifæri til að kynnast bæði nýjustu rannsóknum og hagnýtum leiðum sem tengjast lestrarkennslu. Enn eru laus sæti á báðum viðburðum og upplýsingar um skráningu er að finna í fréttinni á vef HA.