Fara í efni
KA

Þór/KA býður á leikinn gegn Víkingi í dag

Byrjunarlið Þórs/KA í síðasta heimaleik, gegn Breiðabliki 20. maí. Mynd: Ármann Hinrik.

Enn er leikið með um það bil fimm daga fresti í Bestu deild kvenna, eins og verið hefur frá því undir lok apríl. Sjöunda umferð deildarinnar hófst í gær með einum leik, en fjórir leikir verða spilaðir í dag. Þór/KA tekur á móti Víkingi kl. 14.

Þór/KA hefur átt í erfiðleikum með að ná sér í stig það sem af er móti, en liðið er enn án sigurs þegar sex umferðir hafa verið spilaðar, tvö stig komin í pokann eftir jafnteflin á heimavelli við FH og Stjörnuna. Þór/KA færðist í botnsætið eftir tap gegn Fram á útivelli í síðustu umferð. Víkingur er ekki langt undan, en liðið situr í 8. sæti deildarinnar með sex stig. Víkingur tapaði 0-1 fyrir Val á heimavelli í síðustu umferð.

  • Besta deild kvenna í knattspyrnu
    7. umferð

    Þórsvöllur (VÍS völlurinn – gervigras á Ásnum), kl. 14
    Þór/KA - Víkingur

Þór/KA og Víkingur mættust tvisvar í fyrrasumar. Þór/KA vann 4-1 sigur á útivelli í 1. umferðinni í fyrra og aftur 4-1 í Boganum í júnímánuði.