Fara í efni
KA

Þór semur við 26 ára kantmann frá Gana

Knattspyrnudeild Þórs hefur gert þriggja ára samning við Isaac Atanga, 26 ára kantmann sem fæddur er og uppalinn í Gana en lék síðast í Svíþjóð. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Þórsara.

Atanga hóf ferilinn Right to Dream knattspyrnu akademíuna og 18 ára gamall skrifaði hann undir sinn fyrsta atvinnumannasamning við danska úrvalsdeildarliðið FC Nordsjælland. „Þar skoraði hann 12 mörk í 58 leikjum fyrir aðallið Nordsjælland frá 2019-2021 og hefur skorað alls 28 mörk í 160 leikjum í deild og bikar með ofangreindum félögum,“ segir á vef Þórs.

Hann hefur einnig leikið með Cincinnati í MLS deildinni í Bandaríkjunum, Göztepe í Tyrklandi og norska liðinu Álasund að því er segir á vef Þórs. 

Leikmaðurinn kemur til móts við Þórsara á Marbella á Spáni um helgina en þar verður Þórsliðið við æfingar næstu daga.