Fara í efni
KA

Stemningarsigur Þórsara í spennandi leik

Þjálfarar og leikmenn leggja á ráðin í einu leikhléinu. Mynd: Guðjón Andri Gylfason.

Þórsarar náðu sér í mikilvægan sigur í botnbaráttu 1. deildar karla í körfuknattleik í gærkvöld þegar þeir tóku á móti liði Hamars úr Hveragerði. Eftir að gestirnir höfðu leitt lengst af í fyrstu þremur leikhlutunum náðu Þórsarar loks að síga fram úr í þeim fjórða og landa sigrinum. Leikurinn var þó í raun hnífjafn allan tímann og munurinn varð aldrei meiri en sjö stig á annan hvorn veginn. Lokatölur urðu 77-72.

Nýr, en þó gamall, þjálfari var við stjórnvölinn hjá Þórsliðinu. Þröstur Leó Jóhannsson var fenginn til að stýra liðinu í þeim þremur leikjum sem liðið átti eftir í stað Richi González sem þjálfað hefur liðið í vetur. Þresti Leó til aðstoðar í er Björn Benedikt Benediktsson. Greinilegt var að þeir höfðu einsett sér að keyra upp baráttu, leikgleði og trú á verkefnið hjá leikmönnum og það virðist hafa tekist. Hittnin var þó ekki sem best lengst af og margir tapaðir boltar, en sigurinn varð á endanum þeirra.

Christian Caldwell á hér í höggi við Franck-David James Kamgain Nana, leikmann Hamars, en þeir skoruðu mest fyrir sín lið; Christian með 20 stig og Franck með 17. Mynd: Guðjón Andri Gylfason.

Gestirnir úr Hveragerði náðu forystunni fljótlega, en eins og áður sagði varð munurinn aldrei meiri en sjö stig. Þórsarar komust yfir rétt í byrjun, aftur undir lok fyrri hálfleiksins og eftir miðjan þriðja leikhlutann. Leikurinn var einkennilega skrykkjóttur hjá báðum liðum, eins og sjá má á stigaskorinu eftir leikhlutum. Lítið skorað í fyrsta og þriðja leikhluta, en mun meira í öðrum og fjórða. Sjaldgæft að sjá tvö lið skora saman aðeins 23 stig í einum leikhluta eins og gerðist hjá Þór og Hamri í þriðja leikhlutanum. 

Það var ekki aðeins betri stemning innan liðsins en oft áður í vetur heldur tóku stuðningsmenn einnig vel við sér enda ekki annað hægt í þeirri spennu sem boðið var upp á í fjórða leikhlutanum. Hamar leiddi með þremur stigum fyrir lokafjórðunginn, en Þórsarar jöfnuðu og náðu svo fljótlega forystu.

Um og eftir miðjan leikhlutann skoruðu Hákon Hilmir og Páll Nóel mikilvægar þriggja stiga körfur og eftir spennandi lokamínútu náðu Þórsarar að landa fimm stiga sigri, 77-72. Í stöðunni 75-72 fengu gestirnir þó tækifæri eftir misheppnað skot Þórsara, en þeim tókst ekki að nýta það og Eiríkur jók muninn í fimm stig þegar 13 sekúndur voru eftir á klukkunni. Það dugði Þórsurum til sigurs.

Þór - Hamar (11-16) (28-25) 39-41 (11-12) (27-19) 77-72

Christian Caldwell var klárlega maður leiksins í Þórsliðinu, stigahæstur, tók flest fráköst og með flesta framlagspunkta. Hann og Paco Del Aquilla náðu báðir svokallaðri tvöfaldri tvennu, tveggja stafa tölu í tveimur tölfræðiþáttum, báðir í stigaskori og fráköstum.

Helstu tölur Þórsliðsins, stig/fráköst/stoðsendingar:

  • Christian Caldwell 20/15/5 - 29 framlagspunktar
  • Paco Del Aquilla 15/14/2
  • Páll Nóel Hjálmarsson 9/0/0
  • Smári Jónsson 8/1/1
  • Hákon Hilmir Arnarsson 6/2/2
  • Axel Arnarsson 6/0/3
  • Eiríkur Frímann Jónsson 5/5/6
  • Finnbogi Páll Benónýsson 5/2/1
  • Arngrímur Friðrik Alfreðsson 3/1/0
  • Pétur Cariglia 0/6/1
  • Týr Óskar Pratiksson 0/2/0

Tölfræði leiksins

Staðan í deildinni

Þór er áfram í 10. sæti deildarinnar með fjóra sigra, einum fleiri en Hamar og tveimur sigrum meira en Fylkir. Snæfell er sæti ofar en Þór, hefur unnið sex leiki. Ekkert þessara liða á möguleika á að ná 8. sætinu og komast í úrslitakeppni deildarinnar.

Leikirnir sem þrjú neðstu liðin eiga eftir:

  • Þór: Fylkir (ú), Selfoss (ú)
  • Hamar: Breiðablik (h), Snæfell (ú)
  • Fylkir: Þór (h), Breiðablik (h)