Fara í efni
KA

Sköflungur brotnaði og Atanga verður lengi frá

Liðsfélagar Atanga, „Greko“ Jakobsen, Aron Birkir Stefánsson og Atli Sigurjónsson hlúðu að honum ásamt starfsmönnum bæði Þórs og KA eftir að hann slasaðist. Aðgerð á Sjúkrahúsinu á Akureyri gekk vel og Atanga gat brosað breitt að henni lokinni. Myndir: Skapti Hallgrímsson og af fotbolti.net

Isaac Atanga, leikmaður knattspyrnuliðs Þórs, slasaðist illa í leiknum við KA á laugardaginn og verður lengi frá æfingum og keppni. Sköflungur hægri fótar – stærra beinið í fótlegg neðan hnés – fór í tvennt strax á fyrstu mínútu leiksins þegar Isaac reyndi að komast fyrir sendingu Kára Gautasonar fyrir markið en steig á ökkla KA-mannsins og við það brotnaði beinið. Ótrúleg óheppni og mikil blóðtaka fyrir Þórsara því þessi snjalli sóknarmaður hafði byrjað Íslandsmótið af miklum krafti.

„Líðan hans er góð, hann er búinn í aðgerð, illa brotinn, sköflungurinn fór í tvennt. Aðgerðin gekk vel,“ sagði Sigurður Heiðar Höskuldsson, þjálfari Þórs, við fótbolta.net í gær. Sigurður sagði engar líkur á því að Atanga spili aftur á þessari leiktíð. 
 



Isaac er 25 ára Ganverji, kantmaður sem kom frá sænska félaginu Kalmar í vetur. „Hann kom til Evrópu í Right To Dream akademíuna hjá Nordsjælland, spilaði flott tímabil í dönsku úrvalsdeildinni og hefur spilað í MLS-deildinni í Ameríku,“ segir í frétt Sæbjörns Þórs Þorbergssonar Steinke.

„Hann þarf að hitta lækninn sem hann fór í aðgerð hjá aftur eftir fimm vikur. Núna er hann að jafna sig andlega á þessu áfalli og við tökum næstu daga í að setja niður eitthvað plan á endurhæfingu. Hann er á þriggja ára samningi hjá okkur og við vonumst til þess að hann komi til baka með okkur á einhverjum tímapunkti. Við munum hjálpa honum í endurhæfingunni,“ segir Sigurður Heiðar í fréttinni.

 



„Besti pressuleikmaður sem ég hef séð“

„Hann er mjög jákvæður. Hann talaði við foreldra sína í gær, þau vita ekki hvað fótbolti er og hann var að róa þau niður og útskýrði að þetta væri hluti af fótboltanum. Hann er brosmildur og flottur,“ sagði Sigurður og hrósaði Atanga í hástert:

„Hann var farinn að líta rosalega vel út og við vorum ekkert eðlilega spenntir fyrir honum. Að einhverju leyti vorum við farnir að stilla upp okkar leik út frá hans gæðum í bæði vörn og sókn. Hann er besti pressuleikmaður sem ég hef séð, þannig það er mikið högg fyrir okkur varðandi þróun á leikstíl að missa hann út. Það er áskorun að finna lausnir, en við munum finna þær. Við höfum talað um að við séum með breiðan hóp og öflugan bekk, það kemur maður í manns stað. En það er gríðarlegt högg að missa mann af þessu kaliberi og ég er handviss um að hann væri byrjunarliðsmaður í hverju einasta liði í deildinni. Það er extra áskorun að [félagaskipta]glugginn sé lokaður og ekki hægt að fara þá leiðina.“

  • Frétt fótbolta.net í gær

Atanga búinn í aðgerð og spilar ekki meira í ár – „Væri byrjunarliðsmaður í hverju einasta liði í deildinni“