Fara í efni
KA

Magnús Dagur frá KA til Vestmannaeyja

Mynd af vef KA

Handboltamaðurinn Magnús Dagur Jónatansson er farinn frá KA til ÍBV. Þessi óvæntu tíðindi eru tilkynnt á vef KA í dag. Íslandsmótið er nýhafið og aðeins ein umferð af baki.

„Magnús Dagur Jónatansson, hinn bráðefnilegi leikstjórnandi, hefur ákveðið að söðla um og ganga til liðs við ÍBV. KA og Magnús Dagur hafa komist að samkomulagi um starfslok og mun hann því halda ferlinum áfram í Vestmannaeyjum,“ segir á vef KA í dag.

„Magnús sem er uppalinn hjá KA var gríðarlega sigursæll upp alla yngriflokka KA þar sem hann varð margfaldur Íslandsmeistari og Bikarmeistari auk þess að vinna hið virta Partille Cup mót með KA en þar keppa sterkustu lið Norðurlandanna. Hann fékk snemma tækifærið með meistaraflokksliði KA en þrátt fyrir ungan aldur hefur hann leikið 81 meistaraflokksleik fyrir félagið.“

KA þakkar Magnúsi Degi fyrir hans framlag til félagsins og óskar honum alls hins besta og velfarnaðar á nýjum vettvangi.