Fara í efni
KA

Konungsglas Magnúsar Kristjánssonar

SÖFNIN OKKAR – 80

Frá Minjasafninu á Akureyri_ _ _

Akureyri.net heldur áfram að opna dyr safnanna í bænum lesendum til fróðleiks og skemmtunar. Það er gert vikulega, á fimmtudögum.

Sumarið 1907 heimsótti Friðrik VIII Danakonungur Ísland ásamt þingmönnum sínum. Úr urðu mikil hátíðarhöld sem venjulega eru nefnd Konungskoman 1907. Hinn 30. júlí sama ár lögðust fjögur skip konungs að bryggju í Reykjavíkurhöfn og var höfuðborgin mikið skreytt. Tveimur dögum síðar var farið í vikulanga hestaferð um Suðurland og slógust íslenskir þing- og embættismenn með í för ásamt fleirum. Farið var yfir Mosfellsheiði til Þingvalla þar sem fór fram mikil veisla. Ferðin hélt síðan áfram og var komið við hjá Gullfoss og Geysi og síðar haldið niður í Flóa og Ölfus og þaðan aftur til Reykjavíkur yfir Hellisheiði. Friðrik VIII og hans fylgdarlið hélt heim á leið til Danmerkur 9. ágúst en þó var komið við á höfuðstöðum landsbyggðarinnar, Ísafirði, Akureyri og Seyðisfirði. Líkt og í Reykjavík var tekið afar höfðinglega á móti konungi. Meira um heimsókn konungs til Akureyrar síðar.

Friðrik VIII, konungur Danmerkur og Íslands, í Akureyrarheimsókninni 13. ágúst 1907. Mynd: Minjasafnið á Akureyri/Hallgrímur Einarsson

Ýmsir hlutir og minjagripir voru gerðir í tilefni hátíðarhaldanna. Einn slíkur var glerglas, um 125 millimetra hátt og efst um 85 millimetrar í þvermál. Á annarri hlið glassins var mynd af fálka en á hinni áletrunin „Íslandsför 1907“. Hvert glas kom í brúnu leðurhulstri með ól sem hægt var að hafa á sér. Nokkrir fylgdarmenn konungs, þar á meðal embættismenn fengu að gjöf slíkt glas er þeir riðu með konungi um Suðurland. Á langri leið var gjarnan stoppað og glasið þá oftar en ekki tekið fram og skálað.

Magnús Kristjánsson alþingismaður og kaupmaður á Akureyri, og glasið úr fórum hans sem varðveitt er á Minjasafninu á Akureyri.

Ekki er vitað hversu mörg glös voru gerð en fá virðast hafa varðveist. Minjasafnið á Akureyri á þó í fórum sínum eitt slíkt glas ásamt hulstrinu, en það er komið frá Magnús Kristjánssyni kaupmanni á Akureyri. Árið 1907 var Magnús sömuleiðis alþingismaður Akureyrar og einn af fylgdarmönnum konungs um Suðurland. Af því tilefni hefur hann fengið glasið að gjöf frá þáverandi konungi Íslands og Danmerkur, Friðriki VIII.

Glasið er til sýnis á grunnsýningu Minjasafnsins á Akureyri, Akureyri – bærinn við Pollinn og er safnið opið daglega í sumar frá 11–17.