Fara í efni
KA

Jóhann Kristinn hættir með Þór/KA

Jóhann Kristinn Gunnarsson hættir sem þjálfari knattspyrnuliðs Þórs/KA. Mynd: Ármann Hinrik

Jóhann Kristinn Gunnarsson hefur ákveðið að hætta sem þjálfari kvennaliðs Þórs/KA í knattspyrnu. Hann tilkynnti stjórn Þórs/KA í dag að hann vildi stíga til hliðar og muni því ekki endurnýja samning sinn við félagið.

Þetta kemur fram á vef Þórs/KA. Tilkynningin sem birtist þar er svohljóðandi í heild:

Jóhann Kristinn Gunnarsson, sem verið hefur þjálfari meistaraflokks Þórs/KA undanfarin þrjú ár og samtals í átta keppnistímabil, tilkynnti stjórn Þórs/KA á fundi í hádeginu að hann vildi stíga til hliðar og muni því ekki endurnýja samning sinn við félagið.

Jóhann Kristinn kom fyrst til starfa hjá Þór/KA haustið 2011 og stýrði liðinu til fyrsta Íslandsmeistaratitils félagsins sumarið 2012, ásamt því að verða meistari meistaranna og fara með liðið alla leið í bikarúrslitaleik sumarið 2013. Hann stýrði liðinu fyrst í fimm tímabil samfleytt með mjög góðum árangri, Íslandsmeistaratitli fyrsta árið eins og áður sagði og endaði ávallt með liðið í einu af fjórum efstu sætum Íslandsmótsins ásamt því að fara með liðið í undanúrslit deildabikarkeppninnar öll árin nema það fyrsta.

Jóhann kom síðan aftur til starfa og tók við liðinu haustið 2022 og hefur stýrt því undanfarin þrjú tímabil. Liðið endaði í efri hluta Bestu deildarinnar fyrstu tvö árin, í 5. og 4. sæti, en lenti fyrir neðan strik í haust og endaði í 7. sætinu. Tvisvar á undanförnum þremur árum hefur Jóhann stýrt liðinu alla leið í úrslitaleik Lengjubikarsins og undanúrslit eitt árið.

Jóhann Kristinn hefur unnið frábært starf fyrir Þór/KA á þeim átta árum sem hann þjálfaði liðið samanlagt og ekki hægt í stuttum pistli að fara yfir og útskýra þau áhrif og þær framfarir í starfi félagsins sem hann hefur átt stóran þátt í að móta og koma í framkvæmd, auk þess að hafa alltaf verið okkur haukur í horni og ávallt tilbúinn að gefa góð ráð og aðstoða einnig á þeim tíma sem hann starfaði ekki sem þjálfari hjá félaginu.

Árin átta sem Jóhann Kristinn hefur starfað fyrir Þór/KA eru dýrmæt fyrir öll þau sem að félaginu hafa komið á þessum tíma, bæði leikmenn, aðra þjálfara og starfsfólk, stjórnarfólk og sjálfboðaliða og verðum við í Þór/KA honum ævinlega þakklát fyrir framlag hans til þróunar og framgangs knattspyrnu kvenna á Akureyri.

Stjórn Þórs/KA þakkar Jóhanni fyrir óeigingjarnt, faglegt og frábært starf í þágu félagsins í gegnum árin.

Takk, Jói!