Fara í efni
KA

Fjórar frá Þór/KA með U19 í undankeppni EM

Fulltrúar Þórs/KA í U19 landsliðinu, frá vinstri: Steingerður Snorradóttir, Amalía Árnadóttir, Kimberley Dóra Hjálmarsdóttir og Iðunn Rán Gunnarsdóttir.

Þór/KA á fjóra fulltrúa í U19 landsliðinu í knattspyrnu sem tekur þátt í undankeppni EM sem fram fer í Albaníu dagana 22.-31. október.

Það eru þær Amalía Árnadóttir, Iðunn Rán Gunnarsdóttir, Kimberley Dóra Hjálmarsdóttir og Steingerður Snorradóttir sem Margrét Magnúsdóttir landsliðþjálfari hefur valið í þetta verkefni. Þetta eru sömu fjórar og fóru með U19 landsliðinu til Noregs í lok september og spiluðu í æfingamóti við Noreg og Svíþjóð.

Nánar hér á vef Þórs/KA