Enn bíður Þór/KA eftir fyrsta sigrinum
Þór/KA er ennþá í neðsta sæti efstu deildar kvenna í knattspyrnu eftir markalaust jafntefli gegn Val á útivelli í dag. Þetta var þriðja jafntefli liðsins í fyrstu átta umferðunum, tapleikirnir eru orðnir fimm og biðin eftir fyrsta sigurleiknum lengist enn.
Valsarar byrjuðu betur í leiknum í dag og voru mun meira með boltann í fyrri hálfleik en sköpuðu sér engin hættuleg færi, að undanskilinni aukaspyrnu Ísabellu Söru Tryggvadóttur á 11. mínútu af löngu færi. Glæsilegt skot hennar hafnaði efst í marksúlunni en mögulega náði Allie Augur í markinu þó að setja fingurgómana í knöttinn. Annars átti vörn Þórs/KA yfirleitt í fullu tré við sóknarmenn Vals og reyndar hafa Valsstúlkur skorað fæst mörk allra liða í deildinni það sem af er sumri. Hulda Ósk Jónsdóttir skapaði mestan usla fram á við hjá Þór/KA í fyrri hálfleik en marki Vals var þó lítið ógnað og lítið sjálfstraust í sóknartilburðum Þórs/KA.
Betri frammistaða eftir hlé og tvö góð færi
Í seinni hálfleik jafnaðist leikurinn, leikmenn Þórs/KA mættu miklu ákveðnari til leiks en í fyrri hálfleik og áttu hættulegri spretti en heimaliðið. Hildur Anna Birgisdóttir var spræk úti vinstra megin og hefði getað náð forystunni fyrir Þór/KA á 56. mínútu eftir að hafa prjónað sig laglega inn í vítateig. Skot hennar úr góðu færi var hins vegar ekki nógu hnitmiðað og Tinna Brá Magnúsdóttir í markinu varði örugglega.
Erin Flurey kom inn á þegar rúmur hálftími var eftir af leiknum og hressti upp á sóknarleikinn með hraða sínum og leikni. Skömmu eftir að hún kom inn á komst hún í gott færi ein á móti Tinnu í markinu en Tinna gerði mjög vel í að vera sekúndubroti á undan í boltann. Annað gott færi og þetta voru í raun tvö bestu færin í seinni hálfleik.
Hvorugu liðinu tókst að skora áður en lokaflautið gall og bæði liðin eflaust ósátt við að fá bara eitt stig. Eftir fjóra tapleiki í röð var mjög jákvætt fyrir Þór/KA að ná þó einu stigi og halda markinu hreinu en með örlítilli heppni hefði sigurinn alveg getað lent þeirra megin. Frammistaða liðsins var betri en í síðustu leikjum, sérstaklega í seinni hálfleik, og með sama áframhaldi styttist verulega í fyrsta sigurinn.
Næsti leikur liðsins er mánudaginn 22. júní þegar Þróttur kemur í heimsókn í Þorpið.