Fara í efni
KA

Breiðablik of stór biti fyrir Þór/KA

Allie Augur átti stórleik í marki Þórs/KA og bjargaði oft vel. Hér ver hún vel frá Hrafnhildi Ásu Halldórsdóttur snemma í seinni hálfleik. Mynd: Skapti Hallgrímsson

Íslandsmeistarar Breiðabliks héldu sigurgöngu sinni áfram í efstu deild kvenna í knattspyrnu þegar liðið sigraði Þór/KA í kvöld á gervigrasvelli Þórs – VÍS-vellinum á Ásnum. Lokatölur urðu 3:1 gestunum í vil, eftir að staðan hafði verið markalaus í leikhléi. Breiðablik hefur því unnið fimm fyrstu leiki sína í deildinni en Þór/KA er áfram í næstneðsta sæti með tvö stig að afloknum fimm leikjum.

Þór/KA var reyndar sprækara liðið til að byrja með og átti góða spretti í upphafi leiks. Smám saman náðu gestirnir þó undirtökunum og réðu gangi mála. Að frátöldum upphafsmínútunum voru Breiðabliksstelpurnar fljótari og ákveðnari en heimastúlkur, sem hefðu að ósekju mátt vera talsvert grimmari og hugrakkari. Breiðablik skapaði sér mörg góð marktækifæri en Allie Augur átti stórleik í markinu og bjargaði oft vel, auk þess sem boltinn hafnaði einu sinni í stönginni. Arna Sif Ásgrímsdóttir kann líka þá list vel að vera á réttum stað á réttum tíma og kom ófáum boltum í burtu. Þór/KA fékk líka færi og það besta fékk Margrét Árnadóttir á 15. mínútu eftir snögga sókn en Herdís Halla í Blikamarkinu varði vel. Markalaust í leikhléi og trúlega hefur heimaliðið verið talsvert sáttara við þá stöðu en gestirnir.

Eftir tíu mínútna leik í seinni hálfleik brustu loks varnirnar hjá Þór/KA. Hin eldfljóta Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir komst framhjá Agnesi Birtu Stefánsdóttur á vinstri kantinum og í álitlegt færi inni í vítateig þegar Agnes Birta braut á henni og vítaspyrna dæmd. Úr henni skoraði Agla María Albertsdóttir, fyrirliði Blika, af öryggi.

Tvö mörk á skömmum tíma

Hrafnhildur Ása hélt áfram að hrella vörn heimaliðsins og fimm mínútum eftir markið endurtók hún leikinn vinstra megin, kom sér í gott skotfæri í teignum en Allie varði vel. Mínútu síðar var hún enn á ferðinni og átti þá skot í markstöngina. Nokkrum mínútum síðar náði hún svo loksins að skora. Þór/KA missti boltann klaufalega skammt fyrir utan eigin vítateig og Hrafnhildur Ása skoraði gott mark eftir að hún og Agla María spiluðu sig hratt í gegn. Staðan orðin 2:0 og aðeins tveimur mínútum síðar gerðu gestirnir út um leikinn þegar Edith Kristín Kristjánsdóttir skoraði gott mark eftir að hafa fengið boltann inni í teignum.

Þór/KA minnkaði muninn þegar Hulda Ósk Jónsdóttir skoraði með síðustu spyrnu leiksins. Aníta Ingvarsdóttir átti glæsilega sendingu yfir til hægri þar sem Hulda Ósk gerði vel í að keyra inn í teiginn og leggja knöttinn snyrtilega í fjærhornið. Lokatölur 3:1 og ljóst að lið Breiðabliks var númeri of stórt fyrir Þór/KA í kvöld.

  • Hér má sjá glæsilega myndasyrpu Ármanns Hinriks af marki Huldu Óskar. 

Myndir: Ármann Hinrik

Mikilvægur botnslagur í næstu umferð

Uppskeran hjá Þór/KA er því tvö jafntefli og þrjú töp í fyrstu fimm leikjunum. Liðið saknar Huldu Bjargar Hannesdóttur, sem verður ekki meira með á þessu tímabili, og hin öfluga Erin Flurey hefur lítið getað spilað það sem af er sumri vegna meiðsla. Arna Sif er greinilega ekki alheil heldur og náði ekki að klára leikinn í kvöld. Liðið fær gott tækifæri til að laga stöðuna í deildinni næstkomandi mánudag þegar Þór/KA sækir Framara heim í mikilvægum leik en Fram er í neðsta sæti deildarinnar með eitt stig.

Leikskýrslan á vef KSÍ


VERSTA BYRJUN Í 25 ÁR

Víðir Sigurðsson, reyndasti íþróttafréttamaður landsins, sem verið hefur akureyri.net innan handar annað slagið undanfarið, birti í kvöld pistil með ýmisskonar tölfræði á Facebook síðu sinni. 
 
„Þetta er í sjöunda sinn á þessari öld sem Kópavogsfélagið byrjar mótið á fimm sigrum og í tólfta skipti frá upphafi,“ segir Víðir meðal annars, en bætir við: „Þór/KA situr hins vegar eftir með aðeins tvö stig í næstneðsta sæti deildarinnar. Þetta er orðin versta byrjun Akureyrarliðsins í deildinni í 25 ár, eða síðan það tapaði sjö fyrstu leikjum sínum árið 2001. Frá þeim tíma hefur það ekki gerst, þar til nú, að Þór/KA nái ekki að vinna neinn af fyrstu fimm leikjunum.“