Fara í efni
KA

Bjarni og Sólveig valin best hjá KA og KA/Þór

Frá vinstri: Einar Birgir Stefánsson, Dagur Gautason, Jens Bragi Bergþórsson, Haraldur Bolli Heimisson, Bjarni Ófeigur Valdimarsson, Einar Rafn Eiðsson, Sólveig Lára Kristjánsdóttir, Unnur Ómarsdóttir, Bergrós Ásta Guðmundsdóttir og Anna Þyrí Halldórsdóttir. Mynd: ka.is.

Á lokahófi handknattleiksdeildar KA í vikunni, þar sem karlalið KA og kvennalið KA/Þórs fögnuðu góðum vetri, voru veittar ýmsar viðurkenningar. Meðal annars var Bjarni Ófeigur Valdimarsson valinn besti leikmaðurinn hjá körlunum og Sólveig Lára Kristjánsdóttir besti leikmaður kvennaliðsins. Þá voru handboltahjónin Einar Rafn Eiðsson og Unnur Ómarsdóttir heiðruð sérstaklega en þau eru að flytja búferlum frá Akureyri.

Í frétt á vefsíðu KA kemur fram að Bjarni Ófeigur hafi í vetur verið valinn besti leikmaður Olísdeildar karla, auk þess að vera með flestar stoðsendingar og næstmarkahæstur. Sólveig Lára hafi sem fyrr verið algjör lykilmaður í sterkum varnarleik KA/Þórs og í vetur hafi hún að auki leikið stærra hlutverk í sóknarleik liðsins og drifið liðsfélaga sína áfram.

Þá voru þau Jens Bragi Bergþórsson og Bergrós Ásta Guðmundsdóttir valin efnilegustu leikmenn liðanna en þrátt fyrir ungan aldur hafa þau bæði verið í stóru hlutverki í meistaraflokki undanfarin ár.

Þau Haraldur Bolli Heimisson og Anna Þyrí Halldórsdóttir voru valin bestu liðsfélagarnir. Halli Bolli er að vísu ekki lengur leikmaður með KA-liðinu en sem liðsstjóri er hann engu að síður lykilþáttur í liðinu. Anna Þyrí er gríðarlega jákvæð og keyrir liðsfélaga sína áfram, segir í fréttinni á vef KA.

Þá fengu þau Einar Rafn Eiðsson, Dagur Gautason og Sólveig Lára Kristjánsdóttir viðurkenningu fyrir að hafa leikið sinn 100. leik fyrir félögin í vetur og Einar Birgir Stefánsson fyrir 200 leiki.

Handknattleiksdeild KA kvaddi síðan Einar Rafn og Unni Ómarsdóttur en eftir fimm ára veru á Akureyri hafa þau ákveðið að flytja á höfuðborgarsvæðið. Unnur er uppalin hjá KA/Þór og hefur leikið 150 leiki fyrir liðið og varð m.a. bikarmeistari með því árið 2022. Einar Rafn varð markakóngur deildarinnar í tvígang með KA og gegndi stöðu aðstoðarþjálfara á nýliðnu tímabili.