Fara í efni
KA

Bikarinn: KA - ÍR og KA/Þór - Valur

Daði Jónsson og Ágúst Elí Björgvinsson fylgjast með gangi mála þegar KA sigraði ÍR örugglega í deildarleiknum á miðvikudaginn - Bergrós Ásta Guðmundsdóttir skorar gegn Gróttu á þriðjudag, þegar stelpurnar í KA/Þór tryggðu sér farseðilinn í undanúrslit bikarkeppninnar. Myndir: Hafliði Breiðfjörð

Karlalið KA mætir ÍR og kvennalið KA/Þórs leikur gegn Val í undanúrslitum bikarkeppninnar í handbolta. Dregið var í hádeginu í dag.

Undanúrslitaleikir kvenna fara fram miðvikudaginn 25. febrúar en leikir karlaliðanna daginn eftir. Úrslitaleikirnir verða báðir laugardaginn 28. febrúar.

Óhætt er að segja að KA-menn hafi dottið í lukkupottinn og leið þeirra í úrslitaleikinn ætti að vera greið ef allt verður með felldu; ÍR er í neðsta sæti efstu deildar Íslandsmótsins, Olísdeildarinnar, með 5 stig en KA í 5. sæti með 19 stig. Liðin mættust á heimavelli ÍR í deildinni í fyrradag og KA vann þá mjög öruggan sigur, 37:31.

Sigurliðið úr viðureign KA og ÍR mætir öðru hvoru Hafnarfjarðarliðinu, FH eða Haukum, í úrslitaleiknum. Haukar eru efstir í Olísdeildinni með 24 stig en FH er í fjórða sæti með 21.

Leiðin í úrslitaleik er erfiðara fyrir KA/Þór því Valur er í efsta sæti Olísdeildar kvenna með 26 stig en KA/Þór í 6. sæti með 13 stig. Haukar og Fram eru jöfn að stigum í 3. og 4. sæti

Miðvikudag 25. febrúar
Undanúrslit bikarkeppni kvenna

  • Haukar - Fram – 18.00
  • Valur - KA/Þór – 20.15

Fimmtudag 26. febrúar
Undanúrslit bikarkeppni karla

  • FH - Haukar – 18.00
  • ÍR - KA – 20.15

Laugardag 28. febrúar

  • 15.30 – Úrslitaleikur kvenna
  • 18.30 – Úrslitaleikur karla

Allir leikirnir verða í íþróttahúsi Hauka á Ásvöllum í Hafnarfirði, húsi sem nú er kallað Kuehne+Nagel höllin.