Fara í efni
KA

Annar spennandi úrslitaleikur í vændum?

Spennandi leikur fram undan hjá blakkonunum í KA í dag. Mynd: Skapti Hallgrímsson.

Kvennalið KA í blaki tekur á móti HK í öðrum leik úrslitaeinvígis liðanna um Íslandsmeistaratitilinn í dag.

Fyrsti leikurinn var gríðarlega jafn og spennandi, en HK vann hann 3-1. Lokatölurnar í hrinum leiksins segja líklega alla söguna og gefa vonandi fyrirheit um spennandi einvígi. KA vann fyrstu hrinuna 25-23, en HK sneri blaðinu við og vann næstu þrjár, 29-27, 25-23 og 26-24. Hreint ótrúlegar tölur og magnað að skora 99 stig í fjórum hrinum, eða að meðaltali 24,75 stig í hrinu, en andstæðingurinn með 103 stig, eða 25,75 stig að meðaltali í hrinu og vinnur leikinn með þremur hrinum gegn einni.

Vonandi mega áhorfendur eiga von á öðrum álíka jöfnum og spennandi leik og væntanlega getur stuðningur þeirra snúið þessum tölum við þannig að sigurinn lendi KA-megin í viðureign liðanna í KA-heimilinu í kvöld.

  • Íslandsmótið, Unbroken-deild kvenna í blaki
    Úrslitaeinvígi, leikur 2
    KA-heimilið kl. 15:30
    KA - HK
  • Útsending: Livey.events
    Áskrift að rás eða stökum leikjum

Vinna þarf þrjá leiki til að vinna einvígið. Það er því nóg eftir af þessari rimmu, en þriðji leikur liðanna verður í Digranesi í Kópavogi á miðvikudag.