Fara í efni
Jóladagatalið 2021

KA tapaði á Ísafirði og er í 10. sæti

Birgir Baldvinsson skapaði tvisvar mikla hættu við mark Vestra. Ásgeir Sigurgeirsson, á innfelldu myndinni, slasaðist í leiknum en sem betur fer ekki alvarlega eftir því sem næst verður komist. Myndir: Ármann Hinrik

KA tapaði 1:0 fyrir Vestra á Ísafirði í gær í 11. umferð Bestu deildarinnar, efstu deildar Íslandsmótsins í knattspyrnu. Deildin er þar með hálfnuð og KA er í 10. sæti með 12 stig úr leikjunum 11; hefur unnið þrjá leiki, gert þrjú jafntefli og tapað fimm leikjum. FH er í næst neðsta sæti með 11 stig og ÍA neðst með 9 stig.

Heimamenn voru ákveðnari í fyrri hálfleiknum og stjórnuðu ferðinni að mestu leyti. Eina markið kom á 34. mínútu. KA var með boltann í vörninni, hann var sendur á Hallgrím Mar Steingrímsson sem var nálægt miðlínu úti á kanti, varnarmaður sótti að honum og Hallgrímur féll við; KA-menn vildu fá aukaspyrnu, töldu brotið á Hallgrími en dómarinn var á annarri skoðun. Vestramenn voru snöggir fram, Diego Montiel plataði varnarmann inni í vítateig og sendi boltann með lúmsku skoti í nærhornið.

KA-maðurinn Ásgeir Sigurgeirsson var borinn af velli þegar lítið var eftir af fyrri hálfleik og fluttur á sjúkrahús en eftir því sem næst verður komist meiddist hann sem betur fer ekki alvarlega en fékk höfuðhögg í annað sinn á skömmum tíma og engin áhætta því tekin. Þeir féllu á miðjum vellinum, Ásgeir og Fatai Gbadamosi, og fótur Vestramannsins rakst í andlit Ásgeirs. Auk höggsins fékk Ásgeir skurð á gagnaugað og sauma þurfti nokkur spor.

KA-liðið var mun sprækara í seinni hálfleik en þeim fyrri, var meira með boltann og sótti miklu meira. Lið Vestra er þekkt fyrir afar öflugan varnarleik og alkunna er að eftir að liðið kemst yfir er erfitt að brjóta varnarmúr þess niður . KA-strákarnir náðu þó að skapa hættu við mark heimaliðsins í nokkur skipti:

Bjargað var á línu þegar Birgir Baldvinsson skallaði á markið af stuttu færi; Hallgrímur Mar skaut yfir eftir mikinn darraðardans í vítateig Vestra; Römer skaut rétt framhjá beint úr aukaspyrnu utan teigs, og á lokasekúndum leiksins skallaði Birgir yfir mark Vestra. Römer sendi þá boltann inn á teig, markvörðurinn Guy Smit fór í ótrúlega skógarferð yst í teiginn þar sem Birgir og varnarmaður börðust um boltann, KA-maðurinn náði að skalla, sem fyrr segir, og Smit gat prísað sig sælan að boltinn fór yfir markið en ekki í netið.

Leikskýrslan

Staðan í deildinni

Næstu leikir KA í deildinni.

Sunnudag 22. júní:
KA - Víkingur kl. 19:15

Laugardag 28. júní:
KA - Valur 17:00

Sunnudag 6. júlí:
KR - KA 16:00