Fara í efni
Íþróttamaður Akureyrar

Þór/KA úti, Þór heima – Baldvin Þór í Birmingham

Það verður rólegt í fótboltanum fram eftir vikunni enda spiluðu Akureyrarliðin í Bestu deildinni á föstudag og sunnudag. Þór/KA er aftur á föstudegi, útileikur gegn Víkingi, en Þór á heimaleik á laugardag. KA er í lengra fríi þar sem leikurinn gegn Val var færður fram í næstu viku.

Það er hins vegar stórviðburður á dagskrá í frjálsum íþróttum, að vísu ekki á Akureyri. Hér er vísað í Evrópumótið, en þar á UFA einn keppanda í 10 km hlaupi, Baldvin Þór Magnússon, að sjálfsögðu.

FÖSTUDAGUR 14. ÁGÚST - fótbolti

Þór/KA hefur aðeins náð að hífa sig upp stigatöfluna með fjórum sigrum í síðustu sex leikjum, en liðið situr nú í 7. sæti með 15 stig eftir 14 umferðir. Þór/KA og Þróttur eru reyndar jöfn að stigum og með sama markamun, en Þór/KA hefur skorað fleiri mörk. Enn er mjög lítill munur á stigafjölda liðanna í neðri hlutanum, Fram með 16 stig í 6. sætinu, þá Þór/KA og Þróttur með 15 stig, Valur í 9. sætinu með 13 stig og Víkingur færðist niður í 10. sætið eftir tap fyrir Val um helgina, er þar með 11 stig.

Víkingur er einmitt næsti mótherji Þórs/KA og minnugar fyrri leiks liðanna sem fram fór á Akureyri í lok maí má búast við að knattspyrnukonurnar í Þór/KA leggi allt í sölurnar til að ná í þrjú stig í Fossvoginn. Leikur Víkings og Þórs/KA átti upphaflega að vera á fimmtudagskvöld, en var seinkað um einn dag vegna Evrópuleiks á heimavelli Víkings.

  • Besta deild kvenna í knattspyrnu, 16. umferð
    Víkingsvöllur kl. 18
    Víkingur - Þór/KA

LAUGARDAGUR 15. ÁGÚST - fótbolti og frjálsar íþróttir

Aftur seig á ógæfuhliðina hjá Akureyrarliðunum í Bestu deild karla í 18. umferð mótsins sem var spiluð að mestu um helgina. Eftir smá kipp upp á við seig Þór aftur niður í 12. sætið eftir að botnlið FH vann granna þeirra á Akureyri á sunnudag. Þar með eru Akureyrarliðin bæði í fallsæti því KA er með 15 stig eins og Þór, en skárri markamun. Enn munar þó litlu á stigum liðanna í neðri hlutanum og reyndar aðeins sjö stigum á þremur liðum sem eru jöfn í 5.-7. sætinu með 22 stig og Akureyrarliðunum í neðstu sætunum.

Þór tekur á móti Keflavík á laugardag, en Keflvíkingar sitja í 7. sæti deildarinnar, eru með 22 stig að loknum 18 leikjum. 

  • Besta deild karla í knattspyrnu, 19. umferð
    VÍS-völlurinn (gervigrasvöllur á Ásnum) kl. 17
    Þór - Keflavík

Keflavík vann fyrri viðureign liðanna í þessum hluta mótsins þegar liðin mættust í Keflavík í maí. Lokatölur þar 1-0. Þegar litið er á útileiki Keflvíkinga má sjá að þeir hafa ekki unnið á útivelli síðan snemma í maí þegar þeir sóttu Skagamenn heim. Þór hefur hins vegar unnið tvo af þremur síðustu heimaleikjum og gert eitt jafntefli, töpuðu síðast á heimavelli í lok júní.

Baldvin Þór á Evrópumótinu í frjálsum

Evrópumótið í frjálsum íþróttum hófst mánudaginn 10. ágúst og stendur fram á sunnudag 16. ágúst. Ísland á þar átta keppendur og þar af er einn frá UFA. Baldvin Þór Magnússon keppir í 10.000 metra hlaupi laugardaginn 15. ágúst og fer beint í úrslitahlaupið að því er fram kemur á vef Frjálsíþróttasambands Íslands þar sem finna má upplýsingar um mótið, keppendur og tímasetningar. 

Alls eru 28 keppendur frá 14 þjóðlöndum skráðir í 10.000 metra hlaupið. Þess má geta að Baldvin Þór setti Íslandsmet í 10 km götuhlaupi þegar hann hljóp á 27:40 mínútum í Valencia á Spáni í janúar. 

Evrópumótið verður í beinni útsendingu á Rúv alla þessa viku, en 10.000 metra hlaupið er á dagskránni kl. 19:25 á laugardag. 

Myndin hér að neðan sýnir íslensku keppendurna. Smellið á myndina til að lesa upplýsingar um mótið á vef FRÍ.