Eins og klettabelti frá ólíkum sjónarhornum
SÖFNIN OKKAR – 145
Frá Listasafninu á Akureyri_ _ _
Akureyri.net heldur áfram að opna dyr safnanna í bænum lesendum til fróðleiks og skemmtunar. Það er gert vikulega, á fimmtudögum.
Gunnar Kr.
Án titils
Stærð: 20 x 20 x 0
Gunnar Kr. Jónasson (f. 1956), sem gengur undir listamannsnafninu Gunnar Kr., býr og starfar á Akureyri. Hann hefur um áratugaskeið fengist við myndlist og vinnur jöfnum höndum að málverkum, teikningum og gerð þrívíðra verka. Á ferli sínum hefur hann nýtt fjölbreytt efni og aðferðir til að kanna möguleika formsins og samspil efnis og sjónrænnar tjáningar.
Verkin sem hér eru til sýnis eru tólf abstraktmálverk, hvert um sig 20 × 20 cm að stærð, og voru þau hluti af sýningunni Formsins vegna í Listasafninu á Akureyri árið 2016. Verk sýningarinnar einkenndust af slagkrafti og þunga, sem birtist með ólíkum hætti í formum, efnisnotkun og samspili ólíkra eiginleika. Þar nýtti Gunnar meðal annars pappír, létt og viðkvæmt efni, til að skapa form sem tókust á við styrk og kraft þeirra.

Verkin eru nú hluti af sýningunni Hughrif – litir – form II, sem stendur yfir á þriðju hæð Listasafnsins á Akureyri. Sýningin byggir á völdum verkum úr safneign safnsins og er hugsuð sem vettvangur sköpunar og fræðslu. Markmiðið er að hvetja safngesti til að staldra við, skoða verkin af athygli og velta fyrir sér merkingu og áhrifum lita og forma í myndlist. Heiða Björk Vilhjálmsdóttir er sýningarstjóri.
Í abstraktverkum Gunnars er athyglinni beint að formum, litum og innbyrðis tengslum þeirra, fremur en að því að sýna viðfangsefni á raunsæjan hátt. Hvert verk hefur sinn eigin myndheim, en þegar verkin tólf eru skoðuð saman verður til fjölbreytt heild þar sem ólíkar útfærslur og sjónræn tengsl gefa tilefni til að staldra við og skoða hvert verk fyrir sig.
Joris Rademaker, listamaður og sýningarstjóri, komst vel að orði um verk Gunnars í sýningarskrá í tengslum við fyrrgreinda sýningu Formsins vegna árið 2016:
„Að rýna í list Gunnars Kr. er líkast því að virða fyrir sér klettabelti frá mismunandi sjónarhornum. Þar er að finna margar ólíkar hliðar. Sumar grænar og grónar, annars staðar ýmist grýtt urð eða hamrastálið rennislétt og fossar falla. Í skorningunum liggur ennþá snjór meðan fuglar hreiðra um sig og refur skimar eftir bráð. Birtan fellur á síbreytilegan hátt og framkallar óvænt smáatriði en skuggarnir gleypa allt að lokum. Veðurfar, árstíðir og misjafnt árferði – í sumum árum geysa harðari stormar eða fannfergi er meira en öðrum og uppskera bregst jafnvel í kjölfarið. Þannig er lífið, enginn sleppur ósnortinn.“