Fara í efni
Íshokkí

Tveir hjá Þór/KA – einn hjá Þór og KA

Fjórir leikir eru fram undan í Bestu deildum kvenna og karla í knattspyrnu, áður en kemu að landsleikjahléi. Þór/KA á útileik í dag og heimaleik á laugardag, karlaliðin spila á sunnudag, Þór heima og KA úti.

MÁNUDAGUR 25. MAÍ - fótbolti

Heil umferð verður leikin í Bestu deild kvenna í dag. Þór/KA á mikilvægan útileik gegn Fram, en þessi lið eru í tveimur neðstu sætum deildarinnar að loknum fimm umferðum. Þór/KA er í 9. sætinu með tvö stig, en Fram í 10. sæti með eitt. Fram náði í sitt fyrsta stig í mótinu með markalausu jafntefli við Val í síðustu umferð, en Þór/KA tapaði 1-3 á heimavelli fyrir Breiðabliki.

  • Besta deild kvenna í knattspyrnu
    6. umferð
    Lambhagavöllurinn í Úlfarsárdal kl. 16
    Fram - Þór/KA

Þessi lið enduðu í 7. og 8. sæti deildarinnar í fyrra og mættust þrisvar. Þór/KA vann 3-1 sigur á útivelli í maí, en Fram svaraði með 2-1 sigri í Boganum í lok ágúst. Þá gerðu liðin 1-1 jafntefli í lokaleik neðri hluta deildarinnar.

LAUGARDAGUR 30. MAÍ - fótbolti

Enn er leikið með um það bil fimm daga fresti í Bestu deild kvenna, eins og verið hefur frá því undir lok apríl. Þór/KA leikur aftur á laugardag og tekur þá á móti liði Víkings. Að loknum fimm umferðum er Víkingur í 6. sæti deildarinnar með sex stig. Víkingur tapaði 1-4 fyrir Þrótti á heimavelli í síðasta leik, þ.e. í fimmtu umferðinni, en áður en Víkingar mæta norður tekur liðið á móti Val í 6. umferðinni.

  • Besta deild kvenna í knattspyrnu
    7. umferð

    Þórsvöllur (VÍS völlurinn – gervigras á Ásnum), kl. 14
    Þór/KA - Víkingur

Þór/KA og Víkingur mættust tvisvar í fyrrasumar. Þór/KA vann 4-1 sigur á útivelli í 1. umferðinni í fyrra og aftur 4-1 í Boganum í júnímánuði.

SUNNUDAGUR 31. MAÍ - fótbolti

Þór tekur á móti Stjörnunni í 9. umferð Bestu deildar karla á sunnudag, en þessi lið eru í 9. og 10. sæti deildarinnar að loknum átta umferðum. Stjarnan er með sjö stig í 9. sætinu, stigi meira en Þór. 

  • Besta deild karla í knattspyrnu
    9. umferð
    Þórsvöllur (VÍS völlurinn – gervigras á Ásnum), kl. 17
    Þór - Stjarnan

Bæði lið töpuðu síðasta leik sínum 0-1. Stjarnan tapaði fyrri Fram á heimavelli, en Þór beið ósigur fyrir Keflvíkingum á útivelli. Stjarnan hefur náð einu stigi úr síðustu fimm leikjum sínum, en Þór hefur tapað fimm leikjum í röð.

- - -

KA sækir KR heim í 9. umferð Bestu deildar karla á sunnudag. KR-ingar hafa gefið eftir í síðustu tveimur leikjum eftir að hafa unnið fyrstu sex leiki sína í deildinni, en eru þó í 2. sætinu með 19 stig að loknum átta leikjum. KA er í 7. sætinu með tíu stig.

Eftir þrjá sigurleiki í röð tapaði KA fyrir Val á heimavelli í síðustu umferð, 0-1. KR hafði unnið fyrstu sex leiki sína í deildinni áður en liðið gerði síðan jafntefli við Fram í 7. umferðinni og mátti svo þola 6-3 tap fyrir Breiðabliki í síðustu umferð. 

  • Besta deild karla í knattspyrnu
    9. umferð
    Meistaravellir kl. 17
    KR - KA

KA og KR mættust þrisvar í Bestu deildinni í fyrra, gerðu 2-2 jafntefli í fyrstu umferðinni á Akureyri, en KA vann 2-1 á Meistaravöllum í júlí og aftur í neðri hluta deildarinnar í september, 4-2.