Þórsarar gerðu þrjú mörk en töpuðu
Eftir mikla rigningu á Akureyri framan af degi hélt áfram að rigna á VÍS-velli Þórs seinni partinn, þó aðallega mörkum! Þórsarar mættu þá liði Zalgiris frá Litháen í fyrstu umferð forkeppni Evrópudeildar ungmenna í knattspyrnu – UEFA Youth League, mörkin urðu sjö og Þórsarar töpuðu naumlega, 4:3.
Þór varð Íslandsmeistari í 2. flokki í fyrra og Zalgiris vann sambærilega deild heima fyrir.
Vakaris Berenta braut ísinn með marki fyrir gestina strax á fyrstu mínútu leiksins – þegar um 40 sekúndur voru liðnar – eftir klaufagang í vörn Þórs og Dovydas Eidukaitis kom þeim í 2:0 með skalla eftir aukaspyrnu á 24. mín.

Óliver Sesar Bjarnason gerði fyrsta mark Þórs í leiknum; fyrsta mark félagsins í Evrópudeild ungmenna. Mynd: Ármann Hinrik
Óliver Sesar Bjarnason minnkaði muninn fyrir Þór aðeins tveimur mín. síðar, með föstu skoti úr vítateignum hægra megin en Berenta bætti við marki fyrir Zalgiris áður en fyrri hálfleikurinn var úti, aftur eftir slæm mistök. Sending úr vörninni rataði ekki á samherja heldur barst boltinn til Berenta á miðjum vallarhelmingi Þórs, hann sá að Lucas markvörður var langt frá marki sínu og var álíka fljótur að hugsa og Aron Birkir Stefánsson markvörður Þórs í eftirminnilegum leik gegn KR í Bestu deildinni í sumar! Berenta sendi boltann langt utan af velli með bogaskoti yfir Lucas og í tómt markið. Fjarri því jafn glæsilega gert og þegar Aron Birkir gerði mark ársins – eða áratugarins frá miðjum eigin vallarhelmingi – en lærdómurinn er sá að þegar lið leika með markvörðinn jafn framarlega og Þórsarar vilja eru feilsendingar á ákveðnum svæðum vallarins bannaðar! Staðan 3:1 fyrir Litháana að honum loknum.
Stefán Björn Svavarsson, sem kom inná hjá Þór á 61. mínútu, gerði annað mark liðsins á 74. mín. eftir mjög góða sókn; Stefán Björn skallaði boltann í netið eftir frábæra fyrirgjöf Sverris Páls Ingasonar utan af hægri kanti.

Ásbjörn Líndal Arnarsson lék gríðarlega vel í vörn Þórsliðsins, var yfirvegaður og öruggur í öllum aðgerðum. Það leyndi sér ekki hve reynsla stráks eins og Ásbjörns, bæði með meistaraflokki og landsliðum, skiptir miklu máli. Mynd: Ármann Hinrik
Annar varamaður, Rúnar Daði Vatnsdal Sveinsson, jafnaði 3:3 tveimur mín. eftir mark Stefáns Björns. Tæpar 10 mínútur voru þá liðnar síðan Rúnar Daði kom inná og því óhætt að segja að skiptingar þjálfaranna hafi haft áhrif á gang leiksins. Mikil gleði ríkti á og við gervigrasvöllinn á Ásnum þegar Rúnar Daði jafnaði og áhorfendur, sem voru vel á þriðja hundraðið, tóku vel við sér. Gleðin varð þó því miður skammvinn í það skipti; áðurnefndur Berenta var enn einu sinni á ferðinni og gerði fjórða mark gestanna, og sitt þriðja, aðeins mínútu eftir að Þórsarar jöfnuðu.
Þrátt fyrir tapið geta Þórsstrákarnir borið höfuðið hátt; þeir léku að flestu leyti mjög vel en mörkin fjögur sem gestirnir skoruðu voru þó öll afar klaufaleg frá sjónarhóli heimamanna. Það var eðlilega sem blaut tuska í andlitið að fá á sig mark áður en mínúta var liðin af leiknum og ekki undarlegt að tíma tæki að jafna sig á því. Eftir að þeir náðu að hrista það áfall af sér héldu Þórsarar boltanum vel og sýndu oft mjög góð tilþrif en óákveðni eða værukærð, hugsanlega stress, gerði það að verkum að of margar sendingar aftarlega á vellinum voru slakar og Litháarnir refsuðu grimmilega fyrir það.
Þórsarar geta, og eiga, að fara óhræddir til Vilnius, höfuðborgar Litháen, eftir tæpan mánuð. Þeir eru ekki með síðra lið en Zalgiris, líklega betra að mörgu leyti; gestirnir létu finna vel fyrir sér og Þórsstrákarnir verða að vera óhræddir að svara í sömu mynt. Þeir eiga að mæta með kassann úti í seinni leikinn, fullir sjálfstrausts. Þeir geta slegið lið Zalgiris út úr keppninni og tryggt sér tveggja leikja rimmu við St. Patrick's Athletic frá Írlandi í næstu umferð. Sigurliðið þar mætir enska liðinu Chelsea ... En vitaskuld á ekki að hugsa svo langt strax, hið sígilda „einn leikur í einu“ á við nú sem endranær en miklu skiptir að hafa trú á sjálfum sér. Það getur skipt sköpum.

Byrjunarlið Þórs. Aftari röð frá vinstri: Peter Ingi Helgason, Ásbjörn Líndal Arnarsson, Lucas Vieira Thomas, Hákon Kári Jónsson, Kári Jónsson og Kjartan Ingi Friðriksson. Fremri röð frá vinstri: Jósef Orri Axelsson, Natan Dagur Fjalarsson, Óliver Sesar Bjarnason, Smári Signar Viðarsson og Sverrir Páll Ingason.
Leikskýrslan á vef Knattspyrnusambands Evrópu
- Liðin mætast á ný í Litháen eftir tæpan mánuð, 14. október.