Fara í efni
Íshokkí

Þór og Fylkir eigast við í Boganum í kvöld

Sigfús Fannar Gunnarsson er markahæstur í Lengjudeildinni með sex mörk í fjórum leikjum. Hann hefur skorað í síðustu þremur deildarleikjum. Mynd: Ármann Hinrik

Þórsarar taka á móti Fylkismönnum í kvöld í Lengjudeild karla í knattspyrnu, næst efstu deild Íslandsmótsins. Leikurinn fer fram í Boganum og hefst klukkan 18.00. 

Þórsliðið er í fimmta sæti deildarinnar með sjö stig að loknum fjórum leikjum en Fylkir er tveimur stigum á eftir og tveimur sætum neðar.

  • Lengjudeild karla í knattspyrnu
    Boginn kl. 18:00
    Þór - Fylkir

Einn leikur var í deildinni í gær, Þróttarar unnu Völsung 4:1 og fóru á toppinn. Þróttur er með 10 stig en umferðin klárast í kvöld með fimm leikjum og svo gæti farið að Þróttarar yrðu í fimmta sæti að umferðinni lokinni! Staðan er mjög jöfn enda mótið rétt byrjað. Þórsarar gætu farið á toppinn með sigri í kvöld en gætu líka haldið kyrru fyrir í fimmta sætinu, jafnvel mjakast neðar, allt eftir úrslitum kvöldsins.

Leikir kvöldsins:

  • Þór - Fylkir 18.00
  • Fjölnir - ÍR 18.30
  • Keflavík - HK 19.15
  • Selfoss - Njarðvík 19.15
  • Leiknir R - Grindavík 19.15

Í gær:

  • Þróttur R - Völsungur 4:1

Þór hefur unnið Leikni og  Grindavík, gert jafntefli við HK og tapað fyrir liði Keflavíkur.

Fylkir vann Selfoss, gerði jafntefli við Njarðvík og Fjölni en tapaði fyrir Þrótti í síðustu umferð.

Staðan í deildinni