Íshokkí
KA/Þór mætir Fram – SA Víkingar gegn Fjölni
14.11.2026 kl. 06:00
Agatha Kjærbæk Djurhuus og liðsfélagar hennar í KA/Þór taka á móti Fram í dag. Mynd: KA. Heiðar Gauti Jóhannsson, aðstoðarfyrirliði SA Víkinga, verður væntanlega í eldlínunni með liði sínu gegn Fjölni síðdegis. Mynd: Rakel Hinriksdóttir.
Mögulega verður boðið upp á markaveistlu í Skautahöllinni á Akureyri í dag þegar SA Víkingar, karlalið Skautafélags Akureyrar, tekur á móti Fjölni í Toppdeild karla í íshokkí. Á dagskránni er einnig handboltaleikur sem átti að fara fram í gær, en var frestað. KA/Þór tekur á móti Fram.
- Eftir tvo sigra hjá KA/Þór í röð, þá fyrstu sem liðið náði á leiktíðinni, kom fjögurra marka tap fyrir Selfyssingum í 8. umferð Olísdeildar kvenna um síðastliðna helgi. KA/Þór tekur á móti Fram í dag í 9. umferð deildarinnar. Fram vann ÍR með sjö marka mun í síðasta leik sínum. KA/Þór er í 8. sæti deildarinnar með fjögur stig, en Fram í því fjórða með tíu stig.
- SA Víkingar eru í efsta sæti Toppdeildarinnar með 16 stig að loknum átta leikjum. Reykjavíkurliðin hafa leikið einum leik minna, SR með 14 stig og Fjölnir 12 stig úr sjö leikjum. SA Víkingar taka á móti liði Fjölnis í dag. Síðast þegar þessi lið mættust, á Ofurhelginni í Laugardalnum undir lok október, buðu liðin upp á markaveislu, samtals 14 mörk þar sem SA sigraði, 8-6.
- Handbolti
Olísdeild kvenna, 9. umferð
KA-heimilið kl. 14
KA/Þór - Fram
- Íshokkí
Toppdeild karla
Skautahöllin á Akureyri kl. 16:45
SA - Fjölnir