Fara í efni
Íshokkí

KA-menn taka á móti Aftureldingu í kvöld

Dagur Árni Heimisson er langmarkahæstur KA-manna í Olísdeildinni í vetur. Hann hefur gert 51 mark í leikjunum sex. Mynd: Ármann Hinrik

Sjöunda umferð efstu deildar karla í handknattleik, Olísdeildarinnar, er hálfnuð. KA-menn taka á móti liði Aftureldingar í kvöld og umferðinni lýkur annað kvöld með tveimur leikjum.

Tveir síðustu leikir KA voru á útivelli, hinn fyrri í bikarkeppninni gegn Víkingi og síðan sóttu KA-strákarnir Stjörnuna heim í Garðabæ í sjöttu umferð Íslandsmótsins. Báðir leikirnir töpuðust býsna óvænt en KA er í fjórða sæti deildarinnar, hefur unnið fjóra leiki en tapað tveimur, og með sigri í kvöld færi KA upp í annað sæti. KA er með átta stig, Afturelding og FH með níu, en Haukar á toppnum með 14 stig – Haukarnir hafa unnið alla sjö leikina. 

  • Handbolti
    Olísdeild karla, 7. umferð
    KA-heimilið kl. 19
    KA - Afturelding