Fara í efni
Íshokkí

Deildakeppnum að ljúka – bikar á loft á sunnudag

Enn dregur til tíðinda í einhverjum af þeim deildarkeppnum sem í gangi eru í íþróttunum. Úrslitin ráðast í Unbroken-deildum karla og kvenna í blaki og spennandi lokabarátta fram undan í Olísdeild karla í handbolta. Körfuboltalið Þórs berjast hvort á sínum enda 1. deilda karla og kvenna og karlalið KA í knattspyrnu lýkur keppni í Lengjubikarnum um komandi helgi.

MIÐVIKUDAGUR 4. MARS - handbolti, blak

Karlalið Þórs í handbolta náði sér í mikilvæg stig í baráttunni um að forðast fall úr Olísdeildinni með sigri á Selfyssingum í 19. umferðinni. Fram undan eru þrjár æsispennandi umferðir þar sem litlu munar á liðunum í 8.-11. sætinu. HK er með 12 stig, Þór og Selfoss með 11, Stjarnan 10 og ÍR sjö. Þórsarar taka á móti Haukum í næstu umferð, sækja síðan Aftureldingu heim og taka svo á móti KA í lokaumferð deildarinnar.

  • Olísdeild karla í handbolta
    Íþróttahöllin á Akureyri kl. 18:30
    Þór - Haukar
  • Útsending: Handboltapassinn í Sjónvarpi Símans
    Áskriftarsjónvarp

Haukar unnu fyrri leik þessara liða í Hafnarfirði í nóvember, 35-31. 

- - -

Kvennalið KA í blaki á enn nokkuð góða möguleika á að vinna deildarmeistaratitilinn í Unbroken-deildinni. Liðið er þó fjórum stigum á eftir HK, en á leik til góða, heimaleik gegn Völsungi á miðvikudag. Úrslitin í deildinni ráðast síðan væntanlega um komandi helgi þegar KA mætir HK tvívegis í Digranesi í Kópavogi.

  • Unbroken-deild kvenna í blaki
    KA-heimilið kl. 20
    KA - Völsungur
  • Útsending: Livey.events
    Áskrift að rás eða stökum leikjum

FIMMTUDAGUR 5. MARS - körfubolti

Karlalið Þórs í körfubolta hefur verið í ströggli í 1. deildinni í vetur og setið í þriðja neðsta sæti deildarinnar lengst af. Lokaumferðirnar verða spannandi og mikilvægir leikir fram undan hjá Þórsurum því þeir mæta liðunum tveimur fyrir neðan sig í tveimur af þremur síðustu leikjunum. Þeir taka á móti Hamri í 20. umferðinni á fimmtudag, sækja síðan Fylki og Selfyssinga heim í tveimur síðustu umferðunum.

  • 1. deild karla í körfubolta
    Íþróttahöllin á Akureyri kl. 19:15
    Þór - Hamar
  • Útsending: Sýn, KKÍ TV2
    Áskriftarsjónvarp

Þór vann fyrri viðureignina gegn Hamri í byrjun desember með 26 stiga mun, 115-89, þegar liðin mættust í Hveragerði.

FÖSTUDAGUR 6. MARS - handbolti

Fram undan eru spennandi lokaumferðir í Olísdeild karla í handbolta. KA er í baráttu um sætin í efri hlutanum þar sem fimm stigum munar á liðunum í 2. og 7. sætin þegar sex stig eru eftir í pottinum. KA er í 5. sætinu með 24 stig, en Afturelding, Haukar og FH í sætunum fyrir ofan með 25, 26 og 27 stig. Endanleg röð liðanna í töflunni snýst meðal annars um andstæðing í úrslitakeppni og oddaleiksrétt.

  • Olísdeild karla í handbolta, 20. umferð
    Hekluhöllin í Garðabæ kl. 18:30
    Stjarnan - KA
  • Útsending: Sýn, KKÍ TV2
    Áskriftarsjónvarp

KA vann fyrri leikinn gegn Stjörnunni á Akureyri í nóvember, 36-31.

LAUGARDAGUR 7. MARS - blak, körfubolti

Lokaleikirnir í Unbroken-deild karla í blaki eru fram undan. KA á enn möguleika á deildarmeistaratitlinum, en verður þá að treysta á að Hamar tapi lokaleik sínum. Hamar er á toppi deildarinnar með 50 stig og á einn leik eftir, gegn Þrótti Reykjavík. KA er í 2. sætinu með 44 stig og á eftir tvo leiki, báða gegn botnliði HK í Digranesi um komandi helgi. Hamar og Þróttur mætast á föstudagskvöld þannig að þegar í leikina gegn HK er komið verður orðið ljóst hvort KA á möguleika á titlinum. Hver sem staðan verður eru leikirnir þó mikilvægir til að halda í það minnsta 2. sæti deildarinnar.

  • Unbroken-deild karla í blaki
    Digranes í Kópavogi kl. 15
    HK - KA
  • Útsending: Livey.events
    Áskrift að rás eða stökum leikjum

- - -

Lokaleikirnir í Unbroken-deild kvenna í blaki fara fram um komandi helgi. Tvö efstu liðin, HK og KA, mætast þá tvívegis í Digranesi í Kópavogi. HK getur tryggt sér deildarmeistaratitilinn með sigri á laugardag, en KA verður að vinna báða leikina til að ná efsta sætinu, hvort sem liðið vinnur Völsung á miðvikudag eða ekki. 

  • Unbroken-deild kvenna í blaki
    Digranes í Kópavogi kl. 17:15
    HK - KA
  • Útsending: Livey.events
    Áskrift að rás eða stökum leikjum

HK er með 47 stig eftir 18 leiki, en KA er með 43 stig eftir 17 leiki. Vinni KA Völsung á miðvikudag fer liðið í 46 stig, en verður engu að síður að vinna báða leikina gegn HK til að ná toppsætinu.

- - -

Kvennalið Þórs í körfubolta er í 2. sæti 1. deildarinnar, einum sigri á eftir Aþenu. Fjölnir hefur unnið 12 leiki eins og Þór, en situr í 3. sætinu. Á laugardag sækja stelpurnar lið KV heim í Vesturbæ Reykjavíkur. KV er í næstneðsta sæti deildarinnar, hefur unnið tvo leiki í vetur.

  • 1. deild kvenna í körfubolta
    Meistaravellir kl. 18:00
    KV - Þór
  • Útsending: Sýn, KKÍ TV4
    Áskriftarsjónvarp

Þór vann fyrri viðureignina gegn KV með 59 stiga mun á Akureyri í nóvember, 102-43.

SUNNUDAGUR 8. MARS - blak, fótbolti, íshokkí

KA mætir HK öðru sinni í Unbroken-deild karla í blaki, en leikurinn á sunnudag er jafnframt lokaleikur deildarinnar. Mikilvægi sunnudagsleiksins ræðst reyndar af úrslitum í leik KA og HK á laugardag, sem og öðrum leikjum.

  • Unbroken-deild karla í blaki
    Digranes í Kópavogi kl. 15
    HK - KA
  • Útsending: Livey.events
    Áskrift að rás eða stökum leikjum

- - -

Karlalið KA í knattspyrnu leikur lokaleik sinn í A-deild Lengjubikarsins á sunnudag. Ljóst er að KA fer ekki lengra í keppninni, en liðið er í 5. sæti riðils 3 með þrjú stig úr fyrstu fjórum leikjum sínum.

  • Lengjubikar karla í knattspyrnu, A-deild
    Boginn kl. 18
    KA - Grindavík
  • Útsending: Livey.events
    Áskrift að rás eða stökum leikjum

- - -

Seinni leikur kvennaliðs KA í blaki gegn HK, í spennandi toppbaráttu deildarinnar, fer fram á sunnudag. Mikilvægi leiksins á sunnudag ræðst reyndar af úrslitum í leik þessara sömu liða á laugardag.

  • Unbroken-deild kvenna í blaki
    Digranes í Kópavogi kl. 18:15
    HK - KA
  • Útsending: Livey.events
    Áskrift að rás eða stökum leikjum

- - -

Kvennalið Skautafélags Akureyrar í íshokkí hefur fyrir nokkru tryggt sér deildarmeistaratitilinn í Toppdeildinni og oddaleiksréttinn í úrslitaeinvíginu. Liðið á þó eftir einn leik í deildinni og tekur á móti SR í lokaleik sínum, væntanlega með bikarafhendingu í leikslok.

  • Toppdeild kvenna í íshokkí
    Skautahöllin á Akureyri kl. 18:45
    SA - SR
  • Útsending: Icehockeyiceland.tv
    Áskrift að rás eða stökum leikjum.

SA og SR mætast síðan einnig í úrslitaeinvíginu sem hefst laugardaginn 21. mars í Skautahöllinni á Akureyri.

- - -

Lesendur eru hvattir til að minna á íþróttaviðburði hvers kyns sem fram undan eru í meistaraflokkum, sérstaklega ef eitthvað verður út undan og gleymist í þessari vikulegu yfirferð í vikubyrjun hér á akureyri.net - sendið tölvupóst í haraldur@akureyri.net ef koma þarf slíkum upplýsingum á framfæri.