Fara í efni
Íshokkí

Besta deildin á fullu – Bikar á loft í blakinu?

Tvö lið frá KA verða í eldlínunni í dag, karlaliðið í blaki á útivelli og karlaliðið í knattspyrnunni á heimavelli. Mögulega fer bikar á loft í Laugardalshöllinni í dag, en mögulega gæti líka komið til oddaleiks á Akureyri á miðvikudag. Besta deild karla í knattspyrnu er komin á fullt og fjórða umferðin hefst með leik KA og Keflavíkur í dag.

Fjórði leikur KA og Þróttar R. í úrslitaeinvígi liðanna um Íslandsmeistaratitil karla í blaki er á dagskrá á sunnudag og KA komið í þá stöðu eftir sigur í þriðja leiknum að eiga tækifæri á að tryggja sér Íslandsmeistaratitilinn með sigri í Laugardalshöllinni í dag. KA vann fyrsta leikinn á heimavelli, en Þróttur svaraði með sigri í Laugardalshöllinni í leik 2. Aftur vann KA fyrir norðan þegar liðin mættust þriðja sinni og er því 2-1 yfir í einvíginu. 

  • Unbroken-deild karla í blaki
    Úrslitaeinvígi, leikur 4
    Laugardalshöllin kl. 14
    Þróttur R. - KA
  • Útsending: Livey.events
    Áskrift að rás eða stökum leikjum

- - -

Leikjadagskráin í Bestu deild karla í knattspyrnu er þétt þessar fyrstu vikur mótsins og strax í dag leikur KA fjórða leik sinn í mótinu þegar liðið tekur á móti Keflvíkingum. KA náði í sitt fyrsta stig þegar liðið sótti Skagamenn heim í þriðju umferðinni á miðvikudag. Það sama er uppi á teningnum hjá Keflvíkingum, þeir náðu í sitt fyrsta stig með markalausu jafntefli við Breiðablik á heimavelli á miðvikudag.

  • Besta deild karla í knattspyrnu
    Greifavöllurinn á Akureyri kl. 18
    KA - Keflavík

Keflvíkingar enduðu í 5. sæti Lengjudeildarinnar í haust, en unnu umspilið um laust sæti í Bestu deildinni.