Þór og Völsungur leika í Boganum í kvöld

Þór og Völsungur hafa víxlað heimaleikjum liðanna í Lengjudeildinni í knattspyrnu, eins og Akureyri.net sagði frá í gær. Þau áttu að mætast á Húsavík í kvöld en vegna vallaraðstæðna og veðurútlits var ákveðið í gær að leikurinn fari fram í Boganum í kvöld. Viðureignin hefst kl. 19:15.
Völsungur endaði í 2. sæti 2. deildar í fyrrahaust og spilar því í Lengjudeildinni í sumar, næst efstu deild Íslandsmótsins.
- Lengjudeild karla í knattspyrnu
Boginn á Akureyri kl. 19:15
Þór - Völsungur
Völsungur er í áttunda sæti deildarinnar með sex stig, hefur unnið tvo leiki af fimm. Þór er í þriðja sæti með 10 stig, eins og Þróttur, með þrjá sigra, eitt jafntefli og eitt tap. Þór vann Fylki 4:1 í Boganum í fimmtu umferð Lengjudeildarinnar síðastliðinn föstudag, en Völsungur tapaði daginn áður 4:1 á útivelli fyrir Þrótti.
Seinni leikur Þórs og Völsungs í Lengjudeildinni í sumar verður á Húsavík miðvikudaginn 13. ágúst kl. 18:00.
- Þór og Völsungur hafa ekki mæst á Íslandsmóti í 20 ár; síðasti leikur liðanna var einnig í næst efstu deild, á Húsavíkurvelli 18. ágúst árið 2005. Þórsarar unnu 3:1.
- Á meðal leikmanna Þórs þann dag var Ingi Hrannar Heimisson en sonur hans, Sverrir Páll Ingason, er í leikmannahópi Þórs nú. Sverrir Páll, sem er á 17. ári, kom einmitt inn á í síðasta leik gegn Fylki í Boganum og gerði þriðja markið í 4:1 sigri.