Fara í efni
Iðnaðarsafnið

Fyrsti heimaleikur handboltaliðs Þórs

Keppni í Olísdeild karla, efstu deild Íslandsmótsins í handbolta, hófst um liðna helgi. Í kvöld er komið að fyrsta heimaleik Þórsara í deildinni þegar þeir taka á móti liði HK úr Kópavogi.

Bæði liðin biðu ósigur í fyrstu umferðinni. HK tók á móti KA og tapaði með níu marka mun, 28-37. Þór sótti Fram heim í Úlfarsárdalinn og höfðu heimamenn þar betur, 38-34. 

Gera má ráð fyrir að nokkur spenna sé í loftinu á meðal stuðningsmanna Þórs, fyrsti heimaleikurinn og nokkrir nýir menn komnir inn í liðið. Akureyri.net hefur nú þegar farið yfir komandi tímabil hjá Þórsliðinu, breytingar á liðinu og væntingar þjálfara, í grein sem birt var fyrir leikinn gegn Fram - sjá hér.

  • Handbolti
    Olísdeild karla, 2. umferð
    Íþróttahöllin á Akureyri kl. 19
    Þór - HK