Andri Snær þjálfar handboltalið KA

Andri Snær Stefánsson hefur verið ráðinn aðalþjálfari karlaliðs KA í handbolta. Þetta var tilkynnt á vef félagsins síðdegis í dag. Andri lék með KA um árabil og var fyrirliði liðsins undir lok ferilsins. Hann þjálfaði kvennalið KA/Þórs þegar liðið vann allt sem hægt var að vinna árið 2021 og í vetur var Andri Snær aðstoðarþjálfari Halldórs Stefáns Haraldssonar, þjálfara karlaliðs KA.
„Andri Snær er KA maður í húð og hár en hann hóf að leika fyrir meistaraflokk KA árið 2003,“ segir á vef félagsins. Þar kemur fram að hann hafi leikið nær samfleytt með KA uns hann lagði skóna á hilluna 2021 – samtals 166 leiki í deild, bikar og Evrópukeppni. Andri Snær var fyrirliði liðsins í 85 leikjum.
Andri Snær lék með sameiginlegu lið KA og Þórs, Akureyri handboltafélagi, frá 2006 til 2017 og er leikjahæsti leikmaður í sögu liðsins; þar urðu leikirnir 222 og hann var fyrirliði í flestum þeirra.
Andri Snær þjálfaði hjá KA í mörg ár samhliða því að leika. „Hann hóf að þjálfa hjá KA árið 2002. Á þessum rúmum tuttugu árum hefur hann skilað fjölmörgum leikmönnum upp í meistaraflokk og tryggt félaginu ófáa titlana. Til að mynda gerði Andri Snær 5. flokk karla að bikar- og Íslandsmeisturum á nýliðnum vetri,“ segir á vef KA.
Vann allt í fyrstu tilraun! Andri Snær Stefánsson, þjálfari KA/Þórs, Kristín Hanna Bjarnadóttir, eiginkona hans, og synirnir Jóhann Bjarni, Sölvi Snær og Kári Stefán – þá óskírður – þegar KA/Þór kom heim eftir sigur í bikarkeppninni haustið 2021. Mynd: Skapti Hallgrímsson.
Í þjálfuninni er hann þó þekktastur fyrir tímann með kvennalið KA/Þórs en liðið vann alla titla sem í boði voru árið 2021; varð Íslands-, bikar- og deildarmeistari auk þess að næla í titilinn Meistari meistaranna. Andri stýrði liðinu frá 2020 til 2023.
„Andri Snær er með EHF Master Coach gráðu og hefur sýnt það og sannað að hann er gríðarlega fær þjálfari. Hann hefur framúrskarandi leiðtogahæfileika og er þekktur fyrir jákvætt viðmót, fagmennsku og hefur þessa sterku tengingu við félagið, hann er sannkallaður KA-maður af lífi og sál,“ segir í tilkynningu á vef KA.
„Gríðarlega öflugur þjálfari“
„Við erum afar spennt fyrir því að Andri Snær taki við keflinu,“ segir Jón Heiðar Sigurðsson, formaður handknattleiksdeildar KA. „Hann býr yfir mikilli þekkingu og metnaði, og við erum sannfærð um að hann sé rétti maðurinn til að leiða liðið áfram. Andri er gríðarlega öflugur þjálfari og við treystum honum fullkomlega til að ná fram því besta úr leikmannahópnum.“
Í lok tilkynningarinnar segir: „Með ráðningu Andra Snæs er horft til framtíðar en mikill efniviður er staðar hjá félaginu sem Andri Snær fær nú að móta og verður spennandi að sjá hvernig lið okkar þróast á næstunni.“