Húni II
Ótrúleg upplifun sem aldrei gleymist
12.08.2026 kl. 22:00
Hluti Hollvina Húna sigldi á trébátnum fallega frá Akureyri til Ísafjarðar í vikunni til þess að upplifa almyrkva á sólu í dag. „Þetta var ótrúleg upplifun, upplifun sem aldrei gleymist,“ sagði Sigfús Ólafur Helgason, einn skipverja á Húna í ferðinni eftir að hann sendi akureyri.net meðfylgjandi myndir í kvöld. Húni var í Ísafjarðardjúpi þegar almyrkvinn náði hámarki. Myrkrið skall á eins og hendi væri veifað, sagði Sigfús, „og mikill helkuldi fylgdi með. Þetta var svakalegt.“
Á Facebook síðu Húna má sjá stutt myndband sem tekið var um borð. Smellið hér til að horfa.