Fara í efni
Höldur - Bílaleiga Akureyrar

Golf, fótbolti, EM í frjálsum og handbolti

Golf, handbolti, fótbolti og síðast en ekki síst frjálsar íþróttir eru á dagskránni í dag. Kvennasveit Golfklúbbs Akureyrar spilar til úrslita um Íslandsmeistaratitil golfklúbba, Þór tekur á móti Keflavík í Bestu deild karla í knattspyrnu, Opna Norðlenska handboltamótinu lýkur í dag,  og Baldvin Þór Magnússon úr UFA keppir í 10.000 metra hlaupi á Evrópumótinu í frjálsum íþróttum í beinni útsendingu á Rúv í kvöld.

GA-konur sigursælar

Kvennasveit GA mætir sveit Golfklúbbs Mosfellsbæjar í úrslitaviðureign um Íslandsmeistaratitil golfklúbba í dag. Báðar sveitirnar unnu allar þrjár viðureignir sínar í riðlinum, sem og í undanúrslitum. Úrslitaleikurinn hefst kl. 9:45. Fylgjast má með gangi mála í viðureigninni á þessari síðu og er staðan í leiknum uppfærð eftir hverja holu.

Karlasveit GA leikur um 7.-8. sætið í dag.

Lokadagur Opna Norðlenska handboltamótsins

  • Opna Norðlenska í handbolta, karlar
    KA-heimilið kl. 11:30
    KA – ÍR
  • Opna Norðlenska í handbolta, konur
    KA-heimilið kl. 13:30
    ÍR – Afturelding

Keflvíkingar í heimsókn í Þorpinu

Aftur seig á ógæfuhliðina hjá Akureyrarliðunum í Bestu deild karla í 18. umferð mótsins sem var spiluð að mestu um liðna helgi. Eftir smá kipp upp á við seig Þór aftur niður í 12. sætið eftir að botnlið FH vann granna þeirra á Akureyri á sunnudag. Þar með eru Akureyrarliðin bæði í fallsæti því KA er með 15 stig eins og Þór, en skárri markamun. Enn munar þó litlu á stigum liðanna í neðri hlutanum og reyndar aðeins sjö stigum á þremur liðum sem eru jöfn í 5.-7. sætinu með 22 stig og Akureyrarliðunum í neðstu sætunum.

Þór tekur á móti Keflavík í dag, en Keflvíkingar sitja í 7. sæti deildarinnar, eru með 22 stig að loknum 18 leikjum.

  • Besta deild karla í knattspyrnu, 19. umferð
    VÍS-völlurinn (gervigrasvöllur á Ásnum) kl. 17
    Þór - Keflavík

Keflavík vann fyrri viðureign liðanna í þessum hluta mótsins þegar liðin mættust í Keflavík í maí. Lokatölur þar 1-0. Þegar litið er á útileiki Keflvíkinga má sjá að þeir hafa ekki unnið á útivelli síðan snemma í maí þegar þeir sóttu Skagamenn heim. Þór hefur hins vegar unnið tvo af þremur síðustu heimaleikjum og gert eitt jafntefli, töpuðu síðast á heimavelli í lok júní.

Baldvin Þór á Evrópumótinu í frjálsum

Evrópumótið í frjálsum íþróttum hófst mánudaginn 10. ágúst og stendur fram á sunnudag 16. ágúst. Ísland á þar átta keppendur og þar af er einn frá Ungmennafélagi Akureyrar. Baldvin Þór Magnússon keppir í 10.000 metra hlaupi í kvöld og fer beint í úrslitahlaupið að því er fram kemur á vef Frjálsíþróttasambands Íslands þar sem finna má upplýsingar um mótið, keppendur og tímasetningar.

Alls eru 28 keppendur frá 14 þjóðlöndum skráðir í 10.000 metra hlaupið. Þess má geta að Baldvin Þór setti Íslandsmet í 10 km götuhlaupi þegar hann hljóp á 27:40 mínútum í Valencia á Spáni í janúar.

Evrópumótið er í beinni útsendingu á Rúv, en 10.000 metra hlaupið er á dagskránni kl. 19:25.