Fara í efni
Höldur - Bílaleiga Akureyrar

Fjölmenni og fjör á Pollamóti í körfubolta

Það er ekki bara útlitið og búningarnir sem þátttakendur leggja metnað í, heldur má einnig oft sjá skemmtileg nöfn á liðum sem taka þátt. Hér er kvennaliðið Trodd'essu á góðri stund. Þær fengu verðlaun fyrir flottustu búningana. Mynd: Guðjón Andri Gylfason.

Það var líf og fjör í Íþróttahöllinni á Akureyri um liðna helgi þegar körfuknattleiksdeild Þórs hélt sitt árlega Pollamót í körfubolta, að þessu sinni í samstarfi við Skógarböðin. 

Pollamótið var það fjölmennasta til þessa með 355 keppendum í 39 liðum. Fram kemur í umfjöllun um mótið á vef félagsins að mótið hafi heppnast frábærlega í alla staði, en því lauk með lokahófi í Sjallanum með um 300 manns, sem var „án nokkurs vafa það best heppnaða til þessa. Lengi verður gott betra!“ segir í frétt körfuknattleiksdeildarinnar. 

Þátttakendur í mótum eins og Pollamóti Þórs og Skógarbaðanna í körfubolta leggja oft mikið í útlitið og skipa skrautlegir búningar þar aðalhlutverkið. Mynd: Helgi Heiðar Jóhannesson.

Um mótið segir einnig á vef Þórs: „Keppendur sýndu að þeir hafa fáu gleymt inni á vellinum og nýir þátttakendur komu inn með glæsibrag og mikla gleði. Maður er manns gaman og svo er körfubolti skemmtileg íþrótt þar sem allir geta fundið fjöl sína. Þá er fátt skemmtilegra en að hitta gamla félaga úr boltanum og eignast nýja. Það setti einnig mjög skemmtilegan svip á mótið að Draumaliðið inn í Pæjudeildina í ár en allir leikmenn liðsins hafa spilað fyrir kvennalandslið Íslands í körfuknattleik. Þá bættist við slatti af nýjum liðum í öllum flokkum og virkilega gaman að sjá mótið vaxa og dafna.“

Hlutverk liðsstjóra og/eða þjálfara á mótum eins og þessum er mikilvægt og útlitið enn mikilvægara. Gott fyrir leikmenn að geta auðveldlega fundið forystusauðinn í fjöldanum. Mynd: Helgi Heiðar Jóhannesson.

Úrslit slíkra móta skipta ef til vill ekki öllu máli, nema þá helst fyrir liðin sem fá verðlaun og geta myndað sig og sýnt verðlaunin hverjum sem skoða vill. „Þegar upp var staðið var það lið Dagsbrúnar sem varð hlutskarpast í Pæjudeildinni (20 ára og eldri konur) eftir framlengdan leik við Draumaliðið. Grjóti Juniors stóðu uppi sem sigurvegarar eftir harða keppni við Only Hsuman í Polladeildinni (25 til 39 ára karla). Loks unnu Berry and the Pace-makers Lávarðadeildina (karlar 40 ára og eldri) eftir að hafa borið sigurorð af UBK í skemmtilegum úrslitaleik. Flottustu búningana á mótinu áttu Trodd’essu og bestu tilþrif mótsins áttu Snæfellsgellur og Fleiri Snæfellsgellur fyrir skemmtilega dansrútínu,“ segir í frétt Þórs.

Draumaliðið var eingöngu skipað fyrrverandi landsliðskonum í körfubolta. Mynd: Guðjón Andri Gylfason.

Nánar er fjallað um mótið í frétt á vef Þórs.

Nokkrir velunnarar körfuknattleiksdeildarinnar voru með myndavélar á lofti á mótinu.

Að sjálfsögðu mæta lið með sína eigin fána á mótið. Myndir: Guðjón Andri Gylfason.