Fara í efni
Hjólreiðar

Naumur KA-sigur gegn Víkingum

Hornamaðurinn Andri Freyr Friðriksson, sem KA fékk að láni frá Aftureldingu, skoraði fjögur mörk úr fjórum skotum gegn Víkingi. Mynd af vefsíðu KA.

KA sótti nýliða Víkings heim í gærkvöld í 2. umferð efstu deildar karla, Olísdeildinni, og vann nauman 26:25 sigur. Leikurinn var kannski ekki eins jafn og lokatölurnar gáfu til kynna, því KA-menn voru með yfirhöndina allan leikinn og heimaliðið skoraði tvö síðustu mörk leiksins á síðustu mínútunni.

KA lagði grunninn að sigrinum strax í upphafi leiks og eftir 10 mínútna leik var staðan 9:1 KA í vil. Þá loks tóku heimamenn við sér og fóru smám saman að naga niður forskotið. Sú vinna gekk bara býsna vel og þegar rúm mínúta var til leikhlés var munurinn kominn niður í tvö mörk, 11:9. KA skoraði hins vegar síðasta mark hálfleiksins svo forskotið í leikhléi var 3 mörk.

KA með fullt hús stiga

Framan af síðari hálfleik hélst þessi munur en um miðjan hálfleikinn náðu Víkingar að minnka muninn í eitt mark, 18:17. KA-menn gáfu þá aftur í og jóku muninn en Víkingar voru ekki af baki dottnir og náðu aftur að minnka muninn í eitt mark þegar um tvær mínútur voru eftir. Þá komu tvö KA-mörk og munurinn aftur orðinn þrjú mörk og sigurinn í raun í höfn. Tvö mörk Víkings í blálokin komu of seint og 26:25 sigur KA staðreynd. Engin stjörnuframmistaða hjá KA, liðið gerði það sem þurfti til að innbyrða stigin tvö úr leiknum en ekki mikið meira en það. Víkingar gerðu hvað þeir gátu til að vinna upp hið stóra forskot sem KA náði í upphafi leiks og hefðu jafnvel með smáheppni getað stolið stigi.

KA hefur því unnið fyrstu tvo leiki sína í deildinni, báða á útivelli, og er með fullt hús stiga ásamt Fram og Haukum. Fyrsti heimaleikurinn er síðan ekki af verri gerðinni en næstkomandi miðvikudagskvöld mæta nágrannarnir í Þór í KA-heimilið og hafa eflaust mikinn áhuga á því að stöðva sigurgöngu KA.

Mörk KA: Bjarni Ófeigur Valdimarsson 5, Dagur Gautason 5, Andri Freyr Friðriksson 4, Morten Linder 3, Arnór Ísak Haddsson 2, Dagur Árni Heimisson 2, Einar Birgir Stefánsson 2, Jens Bragi Bergþórsson 2, Patrekur Stefánsson 1.

Varin skot: Ágúst Elí Björgvinsson 9.

Mörk Víkings: Sigurður Páll Matthíasson 7 (þar af 6 víti), Gunnar Hrafn Pálsson 6, Elvar Otri Hjálmarsson 4, Þorgeir Bjarki Davíðsson 3, Arnar Már Ásmundsson 1, Ísak Óli Eggertsson 1 (1 víti), Jón Karl Einarsson 1, Kristján Helgi Tómasson 1, Stefán Scheving Th. Guðmundsson 1.

Varin skot: Rökkvi Pacheco Steinunnarson 12, Daði Bergmann Gunnarsson 0.