Fara í efni
Hjólreiðar

Metfjöldi í 1. maí hlaupi UFA – MYNDIR

Mynd: Skapti Hallgrímsson

Ríflega 660 tóku þátt í árlegu 1. maí hlaupi Ungmennafélags Akureyrar að þessu sinni, fleiri en nokkru sinni. Hlauparar voru á öllum aldri, „og þá eru ótaldir þeir foreldrar sem tóku sprettinn sem fylgdarmenn barna sinna í styttri hlaupunum, á svæðinu hafa klárlega verið vel yfir þúsund manns. Þetta er að því er við höldum fjölmennasta 1. maí hlaup UFA frá upphafi. Veðrið lék við okkur, sól og blíða, það gerist ekki betra,“ segir á vef UFA.

Um 260 leikskólabörn hlupu einn hring á vellinum, 400 metra, eftir góða upphitun undir stjórn frjálsíþróttaþjálfarans, Unnars Vilhjálmssonar. Kappið var mikið og sprettu þau vel úr spori.

Um 280 grunnskólabörn hlupu svo af stað í 2 km hring, í þremur hópum eftir aldri. Þau komu þreytt en sæl í mark eftir afrekið. „Máttu þeir foreldrar sem fylgdu sumum eftir hafa sig öll við að missa ekki af þeim,“ segir á vef UFA.

Að lokum hófst 5 km hlaup og þar voru skráð til leiks um 70 krakkar og 50 fullorðnir. „ Leiðin er býsna löng og á fótinn lengi framan af en allir stóðu sig vel og skiluðu sér kátir í mark.“

Í þátttökukeppni grunnskóla sigraði Þelamerkurskóli í hópi fámennari skóli en þar tóku 35% nemenda þátt í hlaupinu, Valsárskóli á Svalbarðseyri var í öðru sæti og Grenivíkurskóli í því þriðja.

Í flokki fjölmennari skóla sigraði Síðuskóli, þar tóku 19% nemenda þátt í hlaupinu, Glerárskóli varð í öðru sæti og Oddeyrarskóli í því þriðja. 

Allir þátttakendur fengu þátttökupening að launum og frímiða í sund. Auk þess var pítsusneið frá Sprettinum og drykkur frá MS í boði fyrir hlaupara.