Fara í efni
Héraðsskjalasafnið

Listasafnið: Nýjar sýningar opnaðar

Listaverkið Söngskemmtun eftir Þorvald Þorsteinsson er útgangspunkturinn í verki Berglindar Jónu Hlynsdóttur á sýningu hennar sem er ein þriggja sem opnaðar verða í Listasafninu á Akureyri næstkomandi laugardag.

Þrjár nýjar sýningar verða opnaðar í Listasafninu á Akureyri laugardaginn 26. september klukkan 15. Sýningarnar eru ólíkar innbyrðis en eiga það sameiginlegt að varpa ljósi á hvernig list getur tekist á við minningar, náttúru, samfélag og þann veruleika sem við búum við.

Í sal 01 verður sýning Berglindar Jónu Hlynsdóttur, 1/3 söngskemmtun, saumur, ló og þvottaleiðbeiningar. Berglind, sem lauk BA-námi í myndlist frá Listaháskóla Íslands og MA-gráðu frá Valand-listaháskólanum í Svíþjóð, stundar nú doktorsnám í listrannsóknum.

Í listsköpun sinni hefur Berglind þróað aðferð þar sem hún leitar að földum eða oft ósýnilegum þáttum í fyrirbærum, stöðum, byggingum og hlutum. Hún hefur kallað það sem safnast þar saman „skuggaefni“. Að þessu sinni er útgangspunkturinn verk Þorvaldar Þorsteinssonar, Söngskemmtun, frá árinu 1998. Berglind safnar saman brotum úr sögu verksins, frásögnum og örsögum frá framleiðslu þess auk leifa og ummerkja sem orðið hafa til á ferðum þess og í geymslu. Úr þessu skuggaefni verður síðan til nýtt verk sem fjallar um það sem á sér stað utan sjálfs atburðarins og það sem verður eftir þegar hann er liðinn.

Listin í skugga stríðs

Sýningin Í skugga átaka spannar nokkra sýningarsali og skoðar stríðsátök út frá verkum listamanna frá ólíkum löndum. Innrás Rússa í Úkraínu 24. febrúar 2022 er mikilvægt upphafspunktur sýningarinnar, en verkin gefa jafnframt víðara sjónarhorn á reynslu fólks af stríði og ógn.

Á sýningunni eru verk eftir úkraínska, íslenska, franska, danska, hollenska og litháíska listamenn. Þau miðla ólíkri reynslu og nálgun. Úkraínsku listamennirnir fjalla meðal annars um sársauka, von og seiglu, en íslensku verkin endurspegla að mestu aðra stöðu og upplifun. Frönsk og dönsk verk tengjast minningum, hollenskt verk teflir saman fortíð og nútíð og verk eftir litháískan listamann fjallar um líf við stöðuga ógn handan landamæra.

Eitt verkanna á sýningunni Í skugga átaka.

Saman mynda verkin sýningu um áhrif stríðs, bæði á einstaklinga og samfélög, og hvernig list getur orðið vettvangur fyrir minningar, úrvinnslu og mótmæli. Sýningarstjórar eru Sigríður Örvarsdóttir og Daría Testo.

Listamenn: Alyona Tokovenko, Angela Soop, Blary Armelle, Comfortable Universe, Klara Lilja, Open Group, Hallgrímur Helgason og Yvette van den Boogard.

Stór svartur steinn

Í sal 06 sýnir Logi Bjarnason verkið Svartur blettur. Logi lauk BA-námi frá Listaháskóla Íslands árið 2008 og MA-námi frá Städelschule í Þýskalandi árið 2012. Hann hefur sýnt verk sín víða, bæði hér á landi og erlendis, og hlotið verðlaun og viðurkenningar fyrir myndlist sína.

Í verkum sínum hefur Logi meðal annars fengist við íslenska náttúru á óhlutbundinn hátt og fléttað saman náttúruleg og samfélagsleg viðfangsefni. Hann vinnur í ólíkum miðlum og bæði í tví- og þrívídd.

Svartur blettur heitir sýning Loga Bjarnasonar.

Verkið sem nú er sýnt er hluti af röð stórra svartra steina. Það verður sett upp á svölum safnsins og byggir á hugmyndum um mörk skynjunar og víddar. Um leið hefur verkið sterka skírskotun til samtímans og ástands heimsins á tímum stríðsátaka. Hið dökka og fyrirferðarmikla form verður þannig ekki aðeins að skúlptúr heldur einnig tilefni til hugleiðinga um rými, samfélag og lífsgæði.