Fara í efni
Héraðsskjalasafnið

Aron bestur og semur áfram til tveggja ára

Aron Birkir Stefánsson, besti maður Þórs í sumar, hefur samið á ný til tveggja ára. Á innfelldu myndinni er Einar Freyr Halldórsson, besti ungi leikmaður Þórs á tímabilinu. Myndir: Skapti Hallgrímsson og Ármann Hinrik

Aron Birkir Stefánsson, markvörður og fyrirliði knattspyrnuliðs Þórs, hefur undirritað nýjan samning til tveggja ára við knattspyrnudeild félagsins. Aron Birkir er því samningsbundinn til ársloka 2028.

Þetta var tilkynnt á lokahófi deildarinnar í félagsheimilinu Hamri í gærkvöldi, þar sem leikmenn og aðstandendur liðsins hittust og gerðu upp liðið tímabil, eins og það er orðað á heimasíðu Þórs. Jafnframt var upplýst að Aron Birkir hefði verið valinn leikmaður ársins hjá Þór og leikmaður leikmannanna. Einnig var tilkynnt að Einar Freyr Halldórsson hefði verið valinn besti ungi leikmaður liðsins i sumar.

Aron Birkir hefur verið fyrirliði Þórs undanfarin ár en. Þessi 27 ára gamli markvörður á að baki 288 leiki fyrir meistaraflokk félagsins og hefur skorað eitt mark – ógleymanlegt mark gegn KR á heimavelli í sumar.

Mark ársins! Liðsfélagar Arons Birkis Stefánssonar fögnuðu honum innilega eftir að hann kom Þór í 3:0 gegn KR með marki af um það bil 70-75 metra færi! Hér faðmar Bjarni Guðjón Brynjólfsson markvörðinn að sér og þeir Einar Freyr Halldórsson og Ragnar Óli Ragnarsson nálgast brosandi út að eyrum. Mynd: Sævar Geir Sigurjónsson

Markahæsti markmaðurinn!

Nýliðar Þórs urðu í 10. sæti Bestu deildarinnar og héldu sæti sínu. Á heimasíðu Þórs er rifjað upp að Aron Birkir var sá markvörður deildarinnar sem hélt marki sínu oftast hreinu, ásamt Aroni Snæ Friðrikssyni sem varði mark Íslandsmeistara Víkings, alls sex sinnum. 

„Aron Birkir var einnig markahæsti markvörður deildarinnar í ár en hann skoraði stórkostlegt mark í 3-3 jafntefli gegn KR á VÍS vellinum,“  segir á heimasíðu Þórs. „Markið skoraði Aron úr aukaspyrnu sem var af miðjum eigin vallarhelmingi og var markið valið það flottasta í öllum uppgjörsþáttum Bestu deildarinnar í haust.“

Einar Freyr er 18 ára. Hann „átti frábæra frumraun í efstu deild og lék lykilhlutverk í liði Þórs á tímabilinu,“ segir á vef Þórs.

„Þessi 18 ára gamli miðjumaður lék 25 leiki í deildinni og skoraði tvö mörk auk þess að vera með fjórar stoðsendingar. Einar hefur leikið 67 leiki fyrir meistaraflokk Þórs og skorað í þeim 6 mörk auk þess að eiga 28 landsleiki fyrir yngri landslið Íslands.“