Fara í efni
Heilsugæslan

Sterkur sigur KA gegn Aftureldingu

Dagur Gautason naut sín vel í KA-heimilinu í gærkvöldi, hvort sem var í vinstra horninu eða í hraðaupphlaupi. Hann gerði átta mörk; hér er eitt þeirra um það bil að verða að veruleika. Mynd: Skapti Hallgrímsson

KA vann góðan 32:28 sigur á Aftureldingu í KA-heimilinu í gærkvöld í efstu deild karla í handknattleik, Olísdeildinni. Eftir hnífjafnan fyrri hálfleik náði KA forystunni í seinni hálfleik og gerði endanlega út um leikinn á síðustu 10 mínútunum. Með sigrinum komst KA uppfyrir Aftureldingu í töflunni og situr nú í 2. sæti deildarinnar.

Fyrri hálfleikur var jafn og spennandi og einkenndist af gríðarlegri baráttu beggja liða. Þótt hart væri tekist á kom ekki nema ein tveggja mínútna brottvísun í öllum leiknum og hún kom þegar 51 mínúta var liðin af honum! KA-menn voru yfirleitt skrefi á undan í fyrri hálfleik og fyrri til að skora og náðu einu sinni þriggja marka forskoti 7:4, sem Afturelding vann strax upp. Annars var jafnt á flestum tölum og í leikhléi var jafnt 15:15. Gestirnir urðu þó fyrir áfalli seint í hálfleiknum þegar Hákon Daði Styrmisson, markahæsti leikmaður liðsins á tímabilinu, meiddist illa og kom ekki meira við sögu.

KA hóf seinni hálfleikinn af krafti og það tók greinilega mikla orku úr Aftureldingarmönnum að þurfa að eiga við öfluga vörn KA og Ágúst Elí Björgvinsson í stuði fyrir aftan hana. KA seig smám saman fram úr en gestirnir sýndu þó mikla seiglu með því að hleypa KA ekki lengra frá sér en 2-3 mörkum.

Daníel Matthíasson (númer 18) og Daði Jónsson voru öflugir í vörn KA eins og svo oft áður. Mynd: Skapti Hallgrímssson.

Í stöðunni 24:22, og rétt liðlega 10 mínútur eftir af leiknum, tóku KA-menn leikhlé og að því loknu settu þeir í fimmta gír og skoruðu næstu þrjú mörk. Afturelding náði ekki að svara því og KA hélt öruggri forystu til leiksloka. 32:28 urðu lokatölur og eins og svo oft áður voru þeir nafnar Dagur Árni Heimisson og Dagur Gautason atkvæðamestir í sóknarleiknum með 8 mörk hvor. Gautason var sérlega frískur í hraðaupphlaupunum og helmingur marka hans kom úr þeim. Ágúst Elí var síðan með 33% markvörslu.

Eftir fremur óvænt töp gegn Stjörnunni í síðasta deildarleik og Víkingi í bikarnum svöruðu KA-menn vel fyrir sig með þessum örugga sigri á Aftureldingarliðinu, sem hafði unnið fjóra leiki í röð og aðeins tapað einum deildarleik. Næsti leikur KA er útileikur í Hafnarfirði gegn FH kl. 18:30 næstkomandi miðvikudagskvöld.

Mörk KA: Dagur Árni Heimisson 8 (4 víti), Dagur Gautason 8, Andri Freyr Friðriksson 3, Arnór Ísak Haddsson 3, Einar Birgir Stefánsson 3, Jens Bragi Bergþórsson 3, Bjarni Ófeigur Valdimarsson 2, Morten Linder 2.

Varin skot: Ágúst Elí Björgvinsson 13, Bruno Bernat 0.

Mörk Aftureldingar: Harri Halldórsson 5, Oscar Sven Leithoff Lykke 5 (1 víti), Árni Bragi Eyjólfsson 4 (1 víti), Hákon Daði Styrmisson 4 (2 víti), Stefán Magni Hjartarson 4, Kristján Ottó Hjálmsson 2, Hans Jörgen Ólafsson 1, Leó Halldórsson 1, Ævar Smári Gunnarsson 1, Þorvaldur Tryggvason 1.

Varin skot: Einar Baldvin Baldvinsson 6, Sigurjón Bragi Atlason 2.