Fara í efni
Háskólinn á Akureyri

Þórsarar áberandi í U19 landsliðinu

Byrjunarlið U19 landsliðsins fyrr á árinu. Einar Freyr Halldórsson er lengst til vinstri í fremri röð, Þorri Ingólfsson við hlið hans, Sverrir Páll Ingason er annar frá hægri í fremri röð og Egill Orri Arnarsson er lengst til hægri í aftari röð. Mynd af vef KSÍ
Þórsarar eru áberandi í leikmannahópi Þórhalls Siggeirssonar, þjálfara landsliðs 19 ára og yngri, fyrir þrjá leiki í undanriðli Evrópumótsins í knattspyrnu. Leikið verður 9. - 18. nóvember í Wales, gegn heimamönnum, Finnum og Spánverjum.
 
Fjórir strákar sem voru áberandi í liði Þórs í Bestu deildinni í sumar eru í hópnum; þrír uppaldir, Ásbjörn Líndal Arnarsson, Einar Freyr Halldórsson og Sverrir Páll Ingason, og Þorri Ingólfsson lánsmaður frá Víkingi. KA-maðurinn Snorri Kristinsson, sem kom við sögu í nokkrum leikjum í Bestu deildinni, er einnig í hópnum og tveir Akureyringar til viðbótar sem fara til Wales eru Þórsararnir hjá Midtjylland í Danmörku, Egill Orri Arnarsson og Sigurður Jökull Ingvason. 
 

Sverrir Páll Ingason – Ásbjörn Líndal Arnarsson – Einar Freyr Halldórsson – Þorri Ingólfsson – Snorri Kristinsson. 

Ásbjörn Líndal, Egill Orri, Einar Freyr, Sigurður Jökull og Sverrir Páll eru allir fæddir 2008 og fagna því 18 ára afmæli á þessu ári. Snorri og Þorri eru hins vegar aðeins 17 ára, fæddir 2007.

Egill Orri Arnarsson og Sigurður Jökull Ingvason sem eru á mála hjá FC Midtjylland í Danmörku.

Markverðir
Gylfi Berg Snæhólm – Breiðabliki
Sigurður Jökull Ingvason – FC Midtjylland

Aðrir leikmenn
Alexander Ingi Arnarsson – Malmö FF
Alexander Máni Guðjónsson – FC Midtjylland
Alexander Rafn Pálmason – FCN
Ásbjörn Líndal Arnarsson – Þór
Brynjar Óðinn Atlason – ÍA
Egill Orri Arnarsson – FC Midtjylland
Einar Freyr Halldórsson – Þór

Eysteinn Rúnarsson – Grindavík
Gabríel Snær Gunnarsson – Elfsborg
Gunnar Orri Olsen – FCK
Gylfi Berg Snæhólm – Breiðabliki
Helgi Hafsteinn Jóhannsson – AaB
Sigurður Breki Kárason – KR
Snorri Kristinsson – KA
Styrmir Jóhann Ellertsson – ÍA
Sverrir Páll Ingason – Þór
Sölvi Snær Ásgeirsson – KR
Tómas Óli Kristjánsson – AGF
Þorri Ingólfsson – Víkingi

  • Þess má geta að markmannsþjálfari íslenska landsliðsins í verkefninu í Wales verður Franko Lalic, leikmaður og markmannsþjálfari hjá Þór.