Fara í efni
Handknattleikur

Þórsarar fóru seint í gang og töpuðu

Mynd: Ármann Hinrik

Fimmta tap Þórsara í röð í Bestu deildinni í knattspyrnu er staðreynd. Þeir sóttu Keflvíkinga heim í kvöld, Marin Brigic skoraði fyrir heimamenn strax á sjöttu mínútu og þar við sat – leikurinn endaði 1:0. Reyndar munaði aðeins nokkrum sentimetrum að norðanmenn færu með eitt stig heim til Akureyrar því Þór fékk vítaspyrnu þegar lítið var eftir af uppbótartíma en skot Einars Freys Halldórssonar fór í stöng og aftur fyrir endamörk.

Varnarmaðurinn Yann Emmanuel Affi mun vera lítillega meiddur og var því ekki með Þór í kvöld. Í stað hans lék Ásbjörn Líndal Arnarsson við hlið Ragnars Óla í miðri vörninni og Elvar Baldvinsson var vinstri bakvörður. Norski framherjinn Sebastian Haugland byrjaði á varamannabekknum að þessu sinni en Daninn „Greko“ Jakobsen var fremsti maður og Sigfús Fannar Gunnarsson lék á vinstri kanti; var í byrjunarliðinu í fyrsta skipti síðan gegn KR í 2. umferð.

Eina mark leiksins kom snemma leiks sem fyrr segir. Fljótlega eftir hornspyrnu barst boltann aftur út á vinstri kant, var síðan sendur inn á markteig Þórsara þar sem Brigic var óvaldaður og skallaði í markið. Þar voru Þórsarar illa á verði og það átti eftir að skipta sköpum.

Einar Freyr Halldórsson, yngsti leikmaður Þórsliðsins, steig fram á ögurstundu og tók vítaspyrnu en fast skot hans fór í stöng og aftur fyrir endalínu.

Hvorki gekk né rak hjá Þór í fyrri hálfleik. Ekki vantaði þó að menn legðu sig fram en það skilaði engu; Þórsurum gekk mjög illa að halda boltanum og sóknartilraunir voru allar afar máttlausar. Það segir sína sögu að Þór átti ekki eitt einasta skot að marki í fyrri hálfleik og náði raunar ekki að skapa eitt einasta færi. Fyrsti stundarfjórðungur seinni hálfleiks var ekki ósvipaður en með þremur skiptingum þegar hálftími var eftir breyttist leikurinn og á lokakaflanum sóttu gestirnir nokkuð stíft. Þá voru Þórsarar líklegri til að skora og þegar lítið var eftir fékk Þór víti sem áður sagði. Það var hárréttur dómur, Ingimar Arnar Kristjánsson komst inn fyrir vörnina og markvörður Keflvíkinga braut á honum yst í vítateignum.

Yngsti Þórsarinn, hinn magnaði Einar Freyr Halldórsson, sem er aðeins 17 ára, steig fram til að taka vítið, en fast skot hans small í stönginni og fór aftur fyrir. 

Leikskýrslan á vef KSÍ

Þegar átta umferðum er lokið eru Þórsarar í 10. sæti með sex stig. Fyrir neðan eru lið FH og ÍBV, með tvö stig hvort.

Næsti leikur Þórs er á heimavelli eftir rúma viku, gegn Stjörnunni á VÍS vellinum sunnuudaginn 31. maí kl. 17.00.