Öflugt Þórslið lagði Fylki að velli

Öflugt Þórslið sigraði Fylki 4:1 í Boganum í kvöld í Lengjudeildinni, næst efstu deild Íslandsmótsins í knattspyrnu. Njarðvík og ÍR eru efst í deildinni með 11 stig að fimm umferðum loknum en Þór og Þróttur eru með 10 stig.
Sigur Þórs var sanngjarn. Liðið var heilsteypt, lék vel á löngum köflum, hvort sem leikmenn tóku á móti gestunum framarlega á vellinum eða vörðust aftarlega og beittu skyndisóknum.
Útherjinn Clement Bayiha kom Þór yfir eftir stundarfjórðung með fyrsta marki sínu í deildinni, gestirnir jöfnuðu snemma í seinni hálfleik þegar Tumi Fannar Gunnarsson skoraði en Ibrahima Balde svaraði um hæl; kom Þór yfir á ný þegar tæp ein og hálf mínúta var frá því Fylkir skoraði.
Þórsarar skoruðu svo í tvígang á síðustu andartökum leiksins. Fyrst Sverrir Páll Ingason og síðan Sigfús Fannar Gunnarsson, sem er því áfram markahæstur í deildinni – Sigfús hefur gert sjö mörk í fimm leikjum en Grindvíkingurinn Breki Þór Hermannsson hefur gert sex mörk.
Liðsheild Þórs var öflug sem fyrr segir en nefna verður Orra Sigurjónsson sérstaklega; hann var frábær í kvöld.
Nánar í fyrramálið