Fara í efni
Handknattleikur

Mikilvægur sigur Þórsara á Selfossi

Hafþór Már Vignisson átti stórleik á Selfossi í dag og skoraði 9 mörk úr 11 skotum. Hér sækir hann að marki FH á dögunum. Mynd: Ármann Hinrik

Þórsarar unnu gríðarlega mikilvægan sigur á Selfyssingum syðra í 19. umferð efstu deildar karla í handknattleik í dag. Leikurinn var jafn allan tímann, Þórsarar þó yfirleitt skrefi á undan, og náðu að landa sigrinum að lokum, 35:33.

Með sigrinum náði Þór að koma sér úr fallsæti og upp í 9. sæti deildarinnar. Liðið er nú aðeins einu stigi á eftir HK og vonin um sæti í úrslitakeppninni er því ennþá sprelllifandi.

Fyrri hálfleikurinn var hnífjafn, Þórsarar 1-2 mörkum yfir framan af en heimamenn náðu að jafna metin um miðjan hálfleikinn og þegar flautað var til leikhlés var enn jafnt, 17:17.

Í seinni hálfleik þróaðist leikurinn á svipaðan hátt, jafnt á flestum tölum en Þórsarar yfirleitt á undan að skora. Þegar um 10 mínútur voru til leiksloka náðu Þórsarar að koma forskotinu upp í 3 mörk, 29:26, og héldu haus alveg til leiksloka. Munurinn varð aldrei minni en 2 mörk og lokatölur 35:33 eins og áður segir.

Þórður Tandri Ágústsson, Brynjar Hólm Grétarsson, fyrir miðri mynd, og Oddur Gretarsson stóðu allir fyrir sínu í dag.  Hér eru þeir í baráttunni í fyrri sigurleik vetrarins gegn Selfyssingum, á heimavelli í október. Mynd: Ármann Hinrik

Hafþór Már Vignisson átti stórleik í dag og skoraði 9 mörk úr 11 skotum og Oddur Gretarsson með 7 og Brynjar Hólm Grétarsson með 6 komu þar næstir á eftir.

Mörk Þórs: Hafþór Már Vignisson 9, Oddur Gretarsson 7 (3 víti), Brynjar Hólm Grétarsson 6, Þórður Tandri Ágústsson 4, Hákon Ingi Halldórsson 3, Halldór Kristinn Harðarson 2, Þormar Sigurðsson 2, Arnór Þorri Þorsteinsson 1, Kári Kristján Kristjánsson 1.

Varin skot: Nikola Radovanovic 9, Tristan Ylur Guðjónsson 0.

Mörk Selfoss: Hannes Höskuldsson 11 (7 víti), Sölvi Svavarsson 6, Tryggvi Sigurberg Traustason 6, Guðjón Baldur Ómarsson 3, Anton Breki Hjaltason 2, Gunnar Kári Bragason 2, Jason Dagur Þórisson 2, Valdimar Örn Ingvarsson 1.

Varin skot: Alexander Hrafnkelsson 5, Philipp Seidemann 4.

Öll tölfræði leiksins hjá HBStatz

Staðan í Olísdeild karla

 

Spennandi lokasprettur

Átta lið komast í úrslitakeppnina. Neðsta lið deildarinnar fellur og það næst neðsta fer í umspil við næst efsta lið Grill 66 deildarinnar um sæti í efstu deild, Olísdeildinni, næsta vetur.

HK er í 8. sæti með 12 stig og á þessa leiki eftir:

  • HK - Selfoss
  • Valur - HK
  • HK - Haukar

Þór er í 9. sæti með 11 stig

  • Þór - Haukar
  • Afturelding - Þór
  • Þór - KA

HÖLLIN 12. MARS!

  • Það verður væntanlega mikil stemning þegar Akureyrarfélögin mætast í lokaumferð deildarkeppninnar, fimmtudagskvöldið 12. mars.
  • Leikurinn gæti orðið gríðarlega mikilvægur fyrir bæði lið, ekki er víst að það ráðist fyrr en þarna hvort Þórsarar halda sæti sínu í deildinni, en þeir gætu líka enn átt möguleika sæti í úrslitakeppninni!
  • Úrslitin gætu líka haft sitt að segja um hvort KA-menn fá heimaleikjarétt í úrslitakeppninni eða ekki.

Lið Selfoss er í 10. sæti, einnig með 11 stig en Þórsarar teljast ofar í töflunni, vann báða leikina við Selfyssinga í vetur.

  • HK - Selfoss
  • Haukar - Selfoss
  • Selfoss - Afturelding

Stjarnan er í 11. sæti með 10 stig

  • Stjarnan - KA
  • ÍR - Stjarnan
  • Stjarnan - Fram

ÍR er í 12. og neðst sæti með 7 stig

  • ÍBV - ÍR
  • ÍR - Stjarnan
  • FH - ÍR