Skíðað og skautað – KA/Þór á útivelli
Skíðamóti Íslands verður fram haldið í dag í Hlíðarfjalli þegar keppt verður í stórsvigi. Fyrsta umferð úrslitakeppni Olísdeildar kvenna í handbolta hefst í dag.
Keppt í stórsvigi á Skíðamóti Íslands
Skíðamót Íslands í alpagreinum stendur nú yfir í Hlíðarfjalli, en keppt er í göngu í Ólafsfirði.
Dagskráin í Hlíðarfjalli í dag:
- 10:00 – Stórsvig, fyrri ferð
-
11:45 – Stórsvig, seinni ferð
Verðlaunaafhending verður að móti loknu við Strýtuskála
Dagskráin í Ólafsfirði í dag, skíðaganga með hefðbundinni aðferð, hópstart:
- 11:00 – 15–16 ára (5 km)
- 11:30 – 13–14 ára (3,5 km)
- 12:00 – Karlar 17+ (15 km)
- 12:05 – Konur 17+ (15 km)
Verðlaunahóf í Tjarnarborg kl. 15:30.
Úrslitakeppni Olísdeildar kvenna að hefjast
Liðin sem enduðu í 3.-6. sæti Olísdeildar kvenna í handbolta hefja leik, en tvö efstu liðin í deildinni, Valur og ÍBV, bíða þar til í undanúrslitum. Þau eiga reyndar eftir að mætast í lokaumferð deildarinnar og verður sá leikur einnig í dag. Hann skiptir þó engu máli um röð liðanna því Valur er deildarmeistari og ÍBV endaði í 2. sæti.
- Olísdeild kvenna í handbolta
Úrslitakeppni, 1. umferð, leikur 1
Ásvellir í Hafnarfirði kl. 17:30
Haukar - KA/Þór - Útsending: Handboltapassinn í Sjónvarpi Símans
Áskriftarsjónvarp
KA/Þór endaði í 6. sæti deildarkeppninnar og mætir Haukum, sem enduðu í 3. sætinu. Haukar unnu allar þrjár viðureignir þessara liða í deildinni í vetur, tvær þeirra með meira en tíu marka mun. Fyrsti leikurinn var á Akureyri í október og endaði 23-27. Haukar unnu svo 35-20 í Hafnarfirði í desember og þriðji leikurinn endaði 20-31 á Akureyri í febrúar.
Vormót ÍSS í Skautahöllinni
Vormót Skautasambands Íslands fer fram í Skautahöllinni á Akureyri í dag og á morgun. Dagskrá dagsins má sjá á myndinni hér að neðan.
