Fara í efni
Golf

Útlit nýbygginga við SAk liggur fyrir – 9.200 fermetra legudeildir

Nýtt húsnæði fyrir legudeildir Sjúkrahússins á Akureyri (SAk) munu líta svona út eða því sem næst. Mynd frá hönnunarteymi Verkís, TBL og JCA.

Nýr Landspítali (NLSH) hefur birt niðurstöðu í hönnunarútboði vegna nýs húsnæðis fyrir legudeild Sjúkrahússins á Akureyri (SAk). Hanna á nýbyggingu fyrir legudeildir í skurð- og lyflækningadeild og dag-, göngu- og legudeild fyrir geðdeild við núverandi húsnæði Sak.

Fyrir valinu varð hópur sem verkfræðistofan Verkís fer fyrir. Gert er ráð fyrir að um 9.200 m2 nýbygging verði staðsett sunnan við núverandi byggingar og tengd eldra húsnæði. Þetta kemur fram í tilkynningu frá NLSH í morgun. Þar segir ennfremur að gert sé ráð fyrir að verklegar framkvæmdir geti hafist með jarðvinnu árið 2025.

Haldið var forval í lok síðasta árs og komust fimm hönnunarteymi áfram. Valmódel lokaða útboðsins var tvískipt. Gæði tillögu gilti 60% og tilboðsverð hönnunarteymis 40% af heildareinkunn sbr. reglur útboðsins. Skipuð matsnefnd fór yfir gæðahlutann en í henni voru Kristján Þór Júlíusson sem var formaður, Ásthildur Sturludóttir, Helgi Davíð Ingason, Hildigunnur Svavarsdóttir og Lilja Stefánsdóttir. Áætlun NLSH um hönnunarkostnað var 779,5 milljónir króna án virðisaukaskatts..

Hæsta heildarskor úr báðum matshlutum, 92,99, stig hlaut hópur Verkís en ásamt Verkís eru þar TBL arkitektar, JCA Ltd. og Brekke & Strand. Hópurinn er með kostnaðartilboð sem nemur 753,5 m.kr. eða 97% af kostnaðaráætlun.

Heildarniðurstaðan varð þessi:

Verkís 92,99 stig, 753,5 milljónir króna

Mannvit 92,18 stig, 668,7 milljónir króna

Tröð 76,27 stig, 685,5 milljónir króna

Efla 75,00 stig, 621,6 milljónir króna

Nordic 65,83 stig, 806,3 milljónir króna

NLSH hefur kynnt bjóðendum niðurstöðuna og verkefnið verður nú unnið áfram í samræmi við lög um skipan opinberra framkvæmda. Gert er ráð fyrir að verklegar framkvæmdir geti hafist með jarðvinnu árið 2025, sem fyrr segir.