Fara í efni
Golf

Íslandsmeistaratitill og tvö brons til GA

Íslandsmeistarar GA í flokki U16 ára drengja. Frá vinstri: Arnar Freyr Viðarsson, Ágúst Már Þorvaldsson, Egill Örn Jónsson, Patrekur Máni Ævarsson og Finnur Bessi Finsson. Myndin er af vef Golfsambands Íslands, golf.is.

Sveit GA pilta, 16 ára og yngri, varð í gær Íslandsmeistari í golfi í eftir sigur á Nesklúbbnum í úrslitaleik. Íslandsmót golfklúbba í flokkum 16 ára og yngri og 18 ára og yngri fór fram á Strandarvelli við Hellu 25.-27. júní. Golfklúbbur Akureyrar sendi fjórar sveitir til keppni á mótinu og unnu þrjár þeirra til verðlauna!

Á Facebook-síðu GA var í mótslok á föstudagskvöld sagt frá þátttöku Akureyringa á Íslandsmótinu. Þar segir meðal annars um U16 lið klúbbsins sem vann Íslandsmeistaratitilinn: „Strákarnir spiluðu einstaklega vel á mótinu og unnu alla sína leiki en úrslitaleikinn sigruðu þeir 2-1 þar sem Patrekur Máni og Egill unnu fjórmenninginn 1/0 með frábærum fugli á 18. holu og Ágúst Már kláraði sinn leik 5/4. Sveitina skipuðu þeir Arnar Freyr Viðarsson, Ágúst Már Þorvaldsson, Egill Örn Jónsson, Finnur Bessi Finnsson og Patrekur Máni Ævarsson. Þrír af strákunum voru í U14 ára sveit okkar í fyrra sem endaði í 3. sæti og eiga því eitt ár eftir í þessum flokki. Til hamingju strákar.“

 
 
Heiðar Davíð Bragason, PGA golfkennari hjá GA og liðsstjóri, Ragnheiður Svava Björnsdóttir, Bryndís Eva Ágústsdóttir, Björk Hannesdóttir, Lilja Maren Jónsdóttir og Ólafur Gylfason, PGA golfkennari hjá GA. Myndin er af Facebook-síðu Golfklúbbs Akureyrar.

Tvenn bronsverðlaun GA-sveita

Stúlknasveitin varð í 3. sæti í flokki U18 ára. Þær misstu naumlega af sæti í úrslitaleiknum, en sigruðu sveit GR í leiknum um 3. sætið, 2-1. Frábær árangur hjá stelpunum, en sveit GA skipuðu þær Björk Hannesdóttir, Bryndís Eva Ágústsdóttir, Lilja Maren Jónsdóttir og Ragnheiður Svava Björnsdóttir. Þess má og geta að Bryndís Eva er ein þeirra sem hefur verið valin til að keppa fyrir Íslands hönd á Evrópumóti yngri landsliða sem fram fer á Englandi 8.-12. júlí. Þá hefur hún einnig verið valin til þátttöku á European Young Masters í Frakklandi 24.-26. júlí.
 

Það sama var uppi á teningnum hjá U18 ára sveit pilta frá GA, bronsverðlaun í hús þar eins og hjá stúlkunum. Leikið var í einum riðli í þeirra flokki og unnu GA piltar þrjá leiki, en töpuðu tveimur. Sveit GA skipuðu þeir Hafsteinn Thor Guðmundsson, Heiðar Kató Finnsson, Ólafur Kristinn Sveinsson og Ragnar Orri Jónsson.

 

Heiðar Davíð Bragason, PGA golfkennari hjá GA og liðsstjóri, Hafsteinn Thor Guðmundsson, Ragnar Orri Jónsson, Ólafur Kristinn Sveinsson, Heiðar Kató Finsson og Ólafur Gylfason, PGA golfkennari hjá GA. Myndin er af Facebook-síðu Golfklúbbs Akureyrar.
Fjórða sveitin frá GA á mótinu var blönduð U14 sveit, sem endaði í 7. sæti af 13 klúbbum, og vann B-úrslitin þar sem leikinn er níu hoku Texas Scramble höggleikur. Þá sveit skipuðu þau Andri Mikael Steindórsson, Bjarki Þór Elíasson, Embla Sigrún Arnsteinsdóttir, Jóakim Elvin Sigvaldason, Kristófer Áki Aðalsteinsson og Sesar Blær Gautason.