Golf: Fimm úr GA í landsliðshópnum
Fimm kylfingar úr Golfklúbbi Akureyrar eru í landsliðshópnum í golfi, sem valinn var á dögunum. Alls voru 27 kylfingar valdir í hópinn, sem kom saman yfir eina helgi í fyrstu æfingabúðirnar nýlega.
Kylfingarnir fimm úr GA sem valdir voru í landsliðshópinn eru þau Arnar Freyr Viðarsson, Ágúst Már Þorvaldsson, Bryndís Eva Ágústsdóttir, Lilja Maren Jónsdóttir og Veigar Heiðarsson.
Í frétt á vef Golfsambands Íslands kemur fram að fyrsta verkefni hópsins í æfingabúðunum var í Háskólanum í Reykjavík þar sem Ólafur Björn Loftsson, afreksstjóri sambandsins, fór yfir kynningu á starfseminni fyrir kylfinga, foreldra þeirra og þjálfurum. Síðan voru æfingar af ýmsu tagi yfir helgina, auk ýmissar afþreyingar inn á milli. Einnig segir í fréttinni að í byrjun janúar næstkomandi fari landsliðshópurinn í æfingaferð á La Finca æfingasvæðið í Alicante á Spáni og síðan verða farnar tvær keppnisferðir til Portúgal í febrúar og mars, þar sem keppt verður á fjórum alþjóðlegum mótum. „Landsliðskylfingar voru vel stemmdir á fyrstu landsliðshelgi vetrarins og það ríkir mikil eftirvænting eftir spennandi og fjölbreyttum verkefnum næstu mánuði,“ segir Ólafur Björn Loftsson í fréttinni.