Fara í efni
Golf

Dramatískt jafntefli og allir vonsviknir heim

Brynjar Hólm Grétarsson jafnar fyrir Þór, 31:31, á lokasekúndunum í kvöld. Hann smeygði sér á milli Dags Gautasonar og Patreks Stefánssonar og kom boltanum framhjá Ágúst Elí Björgvinssyni markverði KA. Mynd: Ármann Hinrik

Mikið gekk á í Íþróttahöllinni á Akureyri í kvöld þegar Þór og KA mættust í lokaumferð efstu deildar karla í handknattleik. Leikurinn var mikilvægur fyrir bæði lið og hafði upp á allt að bjóða sem prýðir alvöru grannaslag – stappfullt hús háværra áhorfenda, markvörslur á báða bóga, mistök af öllu tagi, hörkubaráttu, pústra, rautt spjald... og háspennu allan tímann. Svo fór að lokum að leikurinn endaði með jafntefli, 31:31, sem gagnaðist hvorugu liðinu í baráttunni um betri stað í stöðutöflunni.

Stuðningsmenn beggja félaga fjölmenntu í Höllina og úr varð hin besta skemmtun. Stemningin var frábær en úrslitin urðu reyndar til þess að enginn gladdist þegar flautað var af. Mynd: Ármann Hinrik

Dramatíkin hófst strax í byrjun leiks: Ágúst Elí Björgvinsson í marki KA varði vítakast Odds Gretarssonar eftir einnar mínútu leik og mínútu síðar fékk KA víti hinum megin og Arnór Þorri Þorsteinsson Þórsari fékk tveggja mínútna brottvísun. Einar Rafn Eiðsson skoraði úr vítinu og áhorfendur kunnu vel að meta þessar sviptingar í byrjun leiksins. KA var með byrinn í seglin í upphafi og Þórsurum gekk illa að skora utan af velli. Hákon Ingi Halldórsson tók við keflinu á vítapunktinum fyrir Þórsara og fyrstu þrjú mörk liðsins komu þaðan. Sóknarleikur Þórsara var hægfara og stirður og KA hélt 2-4 marka forskoti fram yfir miðjan hálfleikinn. En Þórsarar sýndu enn einu sinni gríðarlega seiglu og eftir 20 mínútna leik voru þeir komnir yfir, 12:11. Þá komu fjögur mörk frá KA í röð og KA var síðan með tveggja marka forystu í leikhléi, 17:15.

Einar Rafn Eiðsson gerir 31. og síðasta mark KA í kvöld þegar 40 sekúndur voru eftir.  Mynd: Skapti Hallgrímsson

Leikurinn fór að snúast með Þórsurum

Seinni hálfleikur þróaðist á svipaðan hátt og sá fyrri. KA-menn héldu forystunni, þrátt fyrir að eiga engan stórleik, og þótt þeir söknuðu fyrirliða síns Daða Jónssonar úr vörninni gekk þeim vel að eiga við hugmyndasnauðan sóknarleik Þórs. Þegar um 20 mínútur voru til leiksloka breyttist hins vegar eitthvað. Staðan var þá 23:20 fyrir KA en hægt og bítandi snerist leikurinn Þór í vil. Mistökum í sóknarleik KA fjölgaði á sama tíma og Þórsarar náðu að slípa sinn sóknarleik. Smátt og smátt náðu þeir að naga niður forskotið, jafna leikinn og komast síðan yfir með marki Kára Kristjáns Kristjánssonar af línunni þegar 10 mínútur lifðu leiks. Staðan 27:26

Jafntefli – og allir vonsviknir ... Brynjar Hólm Grétarsson jafnar fyrir Þór í blálokin. Þar með misstu KA-menn af fjórða sætinu og heimaleikjarétti í úrslitakeppninni. Þórsarar vissu líklega af því að HK var að vinna Hauka og að sigur hefði því ekki einu sinni dugað Þór til að komast í úrslitakeppnina. Mynd: Ármann Hinrik

Síðustu mínúturnar voru spennuþrungnar og einkenndust af sóknarmistökum á báða bóga, nokkrum góðum markvörslum, auk þess sem hiti fór að færast í leikinn. Oddur Gretarsson Þórsari fékk rautt spjald þegar um 6 mínútur voru eftir af leiknum og litlu munaði að allt syði upp úr. Þórsarar jöfnuðu í 30:30 þegar þrjár mínútur voru eftir og bæði lið fengu færi til að gera út um leikinn á lokakaflanum. Einar Rafn gerði 31. mark KA þegar 40 sekúndur voru eftir af leiknum og Þór tók leikhlé. Síðasta sóknin virtist síðan ætla að renna út í sandinn þegar Brynjari Hólm Grétarssyni tókst einhvern veginn að renna sér gegnum vörnina hægra megin og koma boltanum framhjá Ágústi í markinu – þremur sekúndum fyrir leikslok. Lokatölur 31:31 í æsispennandi baráttuleik.

Jafntefli gagnaðist hvorugu liðinu

Hvorugt liðið gat fagnað þessum úrslitum, því bæði þurftu sigur. Þórsarar í baráttunni við HK um áttunda sætið í deildinni og þátttökurétt í úrslitakeppninni og KA í baráttunni við ÍBV um fjórða sætið. Sigur hefði reyndar ekki dugað Þórsurum, því HK vann sinn leik, og Þórsarar eru því komnir í sumarfrí. Jafnteflið þýðir hins vegar að KA hafnar í 5. sæti deildarinnar, með jafnmörg stig og ÍBV, en úrslit úr innbyrðisviðureignum liðanna í vetur eru ÍBV hagstæðari sem nemur einu marki. Þessi lið munu mætast í fyrstu umferð úrslitakeppninnar og ÍBV fær heimaleik á undan.

Stuðningsmenn KA klappa sínum mönnum lof í lófa að leikslokum. Mynd: Ármann Hinrik

Liðin söknuðu nokkurra lykilmanna í kvöld, eins og fram kom á akureyri.net fyrir leik. Hákon Ingi Halldórsson sýndi fádæma öryggi af vítalínunni hjá Þór og Brynjar Hólm Grétarsson er sannarlega ólseigur í sókninni og skoraði mikilvæg mörk. Línumennirnir Þórður Tandri og Kári Kristján stóðu einnig fyrir sínu. Varnarleikurinn var á köflum heldur ákafur og fengu Þórsarar átta tveggja mínútna brottvísanir, auk rauða spjaldsins hans Odds, á meðan KA-menn voru tvisvar sendir í kælingu. Einar Rafn Eiðsson var afar drjúgur fyrir KA í kvöld og skoraði mörg mikilvæg mörk. Giorgi Dikhaminjia var traustur og nýtti færin sín ágætlega. Ágúst Elí átti ágætar rispur í markinu og varði 16 skot.

Mörk Þórs: Brynjar Hólm Grétarsson 8, Hákon Ingi Halldórsson 8 (7 víti), Kári Kristján Kristjánsson 4, Þórður Tandri Ágústsson 4, Jón Ólafur Þorsteinsson 2, Þormar Sigurðsson 2, Arnór Þorri Þorsteinsson 1, Aron Hólm Kristjánsson 1, Oddur Gretarsson 1.

Varin skot: Nikola Radovanovic 10, Tristan Ylur Guðjónsson 0.

Mörk KA: Einar Rafn Eiðsson 12 (5 víti), Giorgi Dikhaminjia 7, Dagur Gautason 4 (1 víti), Arnór Ísak Haddsson 3, Patrekur Stefánsson 3, Einar Birgir Stefánsson 1, Jens Bragi Bergþórsson 1.

Varin skot: Ágúst Elí Björgvinsson 16 (1 víti), Bruno Bernat 0.

Öll tölfræði leiksins hjá HBStatz

Lokastaðan í Olísdeild karla

Þórsarar í stúkunni þakka sínum mönnum fyrir eftir að flautað var til leiksloka. Mynd: Ármann Hinrik