Auto óskar eftir samtali og samstarfi
Auto ehf. að Setbergi á Svalbarðsströnd hefur óskað eftir samstarfi og samtali við Heilbrigðisnefnd Norðurlands eystra um gerð aðgerðaáætlunar um tiltekt á lóð fyrirtækisins að Setbergi. Þetta kemur fram í fundargerð nefndarinnar frá 15. apríl.
Daginn fyrir fund nefndarinnar var staðfest við skoðun á lóð fyrirtækisins að Setbergi að enn hafi ekki verið brugðist við kröfum nefndarinnar um tiltekt á lóðinni. Sama dag og skoðunin fór fram barst nefndinni erindi frá fyrirtækinu þar sem óskað var eftir samstarfi og samtali um gerð aðgerðaáætlunar um tiltekt á lóðinni.
Heilbrigðisnefndin samþykkti að verða við ósk um fund og hefur falið starfsmönnum Heilbrigðiseftirlits Norðurlands eystra að kalla forsvarsmenn fyrirtækisins til fundar hið fyrsta, eins og segir í bókun nefndarinnar. Þar segir einnig að nefndin leggi áherslu á að frekari dráttur á tiltekt sé óásættanlegur og krefst nefndin þess að aðgerðaáætlun miði að því að vinna við tiltekt hefjist án tafar. Nefndin áréttar jafnframt að dagsektir verði áfram lagðar á fyrirtækið þar til fullnægjandi úrbætur hafa verið gerðar og þær staðfestar af hálfu nefndarinnar.