Þór/KA sækir topplið Þróttar heim í dag

Þór/KA heimsækir topplið Þróttar í Bestu deild kvenna í knattspyrnu í dag. Flautað verður til leiks í Laugardalnum kl. 17.00. Keppni í 8. umferð efstu deildar Íslandsmótsins hófst í gær með leik Tindastóls og Vals (2:2) og fjórir leikir eru á dagskrá í dag.
Þróttur tyllti sér í toppsætið með sigri á FHL í 7. umferðinni á meðan Breiðablik tapaði fyrir FH. Þór/KA vann Stjörnuna og er áfram í 4. sætinu með 15 stig. Þróttur (19 stig), FH (16) og Breiðablik (16) eru í þremur efstu sætunum, en þetta eru einmitt þrír næstu mótherjar Þórs/KA. Fyrst er það útileikur gegn Þrótti í deildinni í dag, þá heimaleikur gegn FH í bikarnum og svo heimaleikur gegn Breiðabliki í deildinni. Það er því óhætt að segja að verkefnin fram undan hjá Þór/KA séu verðug.
- Besta deild kvenna í knattspyrnu
AVIS-völlurinn í Laugardal kl. 17
Þróttur - Þór/KA
Þór/KA vann báðar viðureignir þessara liða í deildarkeppninni í fyrra, 2:1 á heimavelli og 4:2 á útivelli. Liðin gerðu síðan markalaust jafntefli á heimavelli Þróttar í efri hluta deildarinnar í lok keppnistímabilsins.
- Leikurinn verður sýndur á Stöð 2 Sport
- Þróttarar hafa auglýst að frítt sé á völlinn í dag


Aðventa

Magnús verkefnastjóri í gervigreind við HA

Stafræn ragnarök: Opinberun nýrra tíma

Lýðræði á tímum gervigreindar
