Fara í efni
Gervigreind

Þór og Völsungur leika í Boganum í kvöld

Sverrir Páll Ingason með boltann í leiknum gegn Fylki á föstudaginn var. Faðir hans var í Þórsliðinu síðast þegar Þór og Völsungur mættust á Íslandsmótinu - sumarið 2005. Mynd: Ármann Hinrik

Þór og Völsungur hafa víxlað heimaleikjum liðanna í Lengjudeildinni í knattspyrnu, eins og Akureyri.net sagði frá í gær. Þau áttu að mætast á Húsavík í kvöld en vegna vallaraðstæðna og veðurútlits var ákveðið í gær að leikurinn fari fram í Boganum í kvöld. Viðureignin hefst kl. 19:15.

Völsungur endaði í 2. sæti 2. deildar í fyrrahaust og spilar því í Lengjudeildinni í sumar, næst efstu deild Íslandsmótsins. 

  • Lengjudeild karla í knattspyrnu
    Boginn á Akureyri kl. 19:15
    Þór - Völsungur

Völsungur er í áttunda sæti deildarinnar með sex stig, hefur unnið tvo leiki af fimm. Þór er í þriðja sæti með 10 stig, eins og Þróttur, með þrjá sigra, eitt jafntefli og eitt tap. Þór vann Fylki 4:1 í Boganum í fimmtu umferð Lengjudeildarinnar síðastliðinn föstudag, en Völsungur tapaði daginn áður 4:1 á útivelli fyrir Þrótti.

Seinni leikur Þórs og Völsungs í Lengjudeildinni í sumar verður á Húsavík miðvikudaginn 13. ágúst kl. 18:00.

  • Þór og Völsungur hafa ekki mæst á Íslandsmóti í 20 ár; síðasti leikur liðanna var einnig í næst efstu deild, á Húsavíkurvelli 18. ágúst árið 2005. Þórsarar unnu 3:1.
  • Á meðal leikmanna Þórs þann dag var Ingi Hrannar Heimisson en sonur hans, Sverrir Páll Ingason, er í leikmannahópi Þórs nú. Sverrir Páll, sem er á 17. ári, kom einmitt inn á í síðasta leik gegn Fylki í Boganum og gerði þriðja markið í 4:1 sigri.

Með tæknina mér við hlið: Hlutverk gervigreindar í skólastarfi

Ástrós Guðmundsdóttir skrifar
07. janúar 2025 | kl. 17:30

Aðventa

Magnús Smári Smárason skrifar
10. desember 2024 | kl. 16:16

Magnús verkefnastjóri í gervigreind við HA

Skapti Hallgrímsson skrifar
03. desember 2024 | kl. 15:40

Stafræn ragnarök: Opinberun nýrra tíma

Magnús Smári Smárason skrifar
19. nóvember 2024 | kl. 17:30

Lýðræði á tímum gervigreindar

Magnús Smári Smárason skrifar
30. október 2024 | kl. 11:45

Nokkur heilræði varðandi gervigreind

Magnús Smári Smárason skrifar
01. október 2024 | kl. 09:30